Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
Skýjað og 12 gráður, fínasta fótboltaveður
Þróttur R.
Þróttur R.
3 - 0
Selfoss
Selfoss
Danielle Julia Marcano 4'1 - 0Danielle Julia Marcano 38'2 - 0Álfhildur Rósa Kjartansdóttir 79'3 - 0
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Selfoss getur ekki keypt sér mark

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í dag var færanýting hjá báðum liðum. Selfoss hefði hæglega getað skorað 3 mörk en inn vildi boltinn ekki. Þróttur Reykjavík fékk ekki jafn mörg færi en nýttu þau þó mun betur og skildi það liðin að í dag.

Bestu leikmenn

1. Íris Dögg Gunnarsdóttir

Það er ekki oft sem að lið vinna 3-0 og markmaður liðsins er maður leiksins en Íris var frábær í dag. Selfoss fékk nokkur dauðafæri en alltaf varði Íris boltann.

2. Danielle Julia Marcano

Danielle skoraði 2 frábær mörk í dag og nánast kláraði leikinn fyrir Þrótt R.

Atvikið

Atvik leiksins var seinna mark Þróttar R., sem kom Selfoss í opna skjöldu þar sem Þróttur R. hafði nánast ekki ógnað marki Selfoss eftir fyrsta mark leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Þróttur er enn í 4. sæti en nálgast Stjörnuna, nú aðeins 2 stigum frá Garðbæingunum. Selfoss halda sér í 6. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Sóknarlína Selfoss skapaði fullt af færum en þegar það kom að því að klára færin þá var önnur saga. Liðið getur ekki keypt sér mark þessa dagana en Selfoss skoraði mark síðast í deildinni þann 1. júní og áttu sóknarmenn Selfoss ekki sinn besta dag í dag þar sem þær klúðruðu haug af færum.

Dómarinn - 5

Báðir þjálfarar liðanna höfðu orð á því hvað leikmenn voru illa verndaðir á vellinum vegna fárra spjalda og hafa þeir eitthvað til síns máls, aðeins 1 spjald á loft í dag og hefðu þau svo sannarlega getað verið fleiri.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.