Fotbolti.net
@maggimarMagnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Pepsi-deild karla
Selfossvöllur
Mjög fínar
Selfoss
Selfoss
1 - 3
ÍA
ÍA
0 - 111' Jón Vilhelm ÁkasonJon Andre Royrane 14'1 - 11 - 237' Garðar Bergmann Gunnlaugsson1 - 341' Arnar Már Guðjónsson
Dómari: Þorvaldur Árnason
0. mín
Hér verður bein textalýsing frá leik Selfyssinga og ÍA í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í dag. Selfyssingar eru í mikilli fallhættu og það þarf ýmislegt að ganga á ef að liðið ætlar að bjarga sér frá falli. Selfyssingar þurfa að sigra ÍA, treysta á að ÍBV vinni Fram og um leið vonast til að vinna upp sex marka mun sem er á milli liðanna. Skagamenn sigla aftur á móti lygnan sjó í sjöunda sætinu en þeir geta hoppað upp um eitt sæti og einnig dottið niður í níunda sætið.
0. mín
Bernard Petrus Brons leikmaður Selfyssinga tekur út leikbann í leiknum í dag. Þá er Aron Ýmir Pétursson í leikbanni hjá Skagamönnum.
0. mín
Byrjunarliðin eru klár. Þau má sjá hér til hliðar!
0. mín
Völlurinn á Selfossi er í flottu standi og allt til staðar fyrir góðan leik í dag.
0. mín
Skagamenn fóru illa með Selfyssinga í fyrri leiknum í sumar en niðurstaðan á Akranesi var 4-0.
0. mín
Tómas Leifsson var úrskurðaður í leikbann á fundi aganefndar á þriðjudag. Það voru hins vegar mistök, hann er ekki í banni og er á vinstri kantinum í dag.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Stuðningsmenn Selfyssinga virðast ekki hafa alltof mikla trú á verkefninu því að stúkan er ekki einu sinn hálffull.
7. mín
Andri Adolphsson fær ágætis færi eftir undirbúning hjá Jóni Vilhelm Ákasyni en skot hans fer framhjá.
ÍA
11. mín
MAAAARK!

Jón Vilhelm Ákason

Skagamenn komast yfir og brekkan er orðinn ansi brött fyrir Selfyssinga. Eftir fyrirgjöf frá vinstri kastar Ismet Duracak sér á boltann og slær hann beint á Jón Vilhelm Ákason sem þakkar fyrir sig með því að skora í autt markið.
Selfoss
14. mín
MAAAARK!

Jon Andre Royrane

Selfyssingar svara strax. Viðar Örn vippar boltanum skemmtilega framhjá varnarmönnum ÍA inn á Jon Andre Royrane sem skorar með skoti í fjærhornið.
15. mín
Ismet Duracak ver skalla Ármanns Smára eftir hornspyrnu og í kjölfarið er mikill darraðadans í markteignum áður en Selfyssingar ná að hreinsa.
17. mín
Viðar Örn með skalla sem Árni Snær ver auðveldlega. Það eru færi á báða bóga hér, fjörug byrjun!
25. mín
Selfyssingar fá aukaspyrnu í vítateigsboganum. Jón Daði Böðvarsson þrumar í átt að marki en boltinn fer beint í hausinn á Kára Ársælssyni sem steinliggur.
33. mín
Viðar Örn Kjartansson á skot sem Árni ver eftir langt innkast frá Stefáni Ragnari. Selfyssingar verða að fara að skora ef þeir ætla sér að bjarga sæti sínu.
35. mín
Tómas Leifsson fær fínt færi á fjærstönginni eftir undirbúning hjá Jóni Daða en honum bregst bogalistin.
ÍA
37. mín
MAAAARK!

Garðar Bergmann Gunnlaugsson

Garðar Gunnlaugsson kemur Skagamönnum yfir eftir frábæran undirbúning hjá Jóni Vilhelm Ákasyni. Jón Vilhelm fíflar Stefán Ragnar og rennur boltanum síðan framhjá Duracak og á Garðar sem skorar í autt markið af markteig. Níunda mark Garðars í sumar.
40. mín
Þetta mark kom nokkuð gegn gangi leiksins en Selfyssingar höfðu verið frískari síðustu mínúturnar.
ÍA
41. mín
MAAAARK!

Arnar Már Guðjónsson

Ég þori að fullyrða að Selfyssingar munu leika í 1. deildinni næsta sumar. Arnar Már skorar þriðja mark ÍA eftir sendingu frá Garðari.
45. mín
Búið er að flauta til leikhlés. Selfyssingar virðast vera búnir að gefast upp, það vantar alla baráttu hjá þeim og það þarf kraftaverk til að liðið nái að bjarga sæti sínu.
45. mín
Selfyssingar halda lokahóf sitt í kvöld og hægt er að kaupa miða á það hér í hálfleik.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafinn. Það er kannski lýsandi að Skagamenn taka baráttuhring fyrir síðari hálfleikinn á meðan Selfyssingar standa og horfa á.
Selfoss
48. mín
Rautt spjald

Endre Ove Brenne

Ástandið versnar og versnar hjá Selfyssingum. Endre Ove Brenne tæklar Arnar Már Guðjónsson upp við vítateiginn og Þorvaldur Árnason lyftir rauða spjaldinu umsvifalaust. Ljót tækling en erfitt að sjá það héðan hvort hún verðskuldaði beint rautt spjald.
Selfoss
50. mín
Gult spjald

Luka Jagacic

52. mín
Theo Furness kemst í dauðafæri en Ismet Duracak ver frá honum.
Selfoss
52. mín
InnBjarki Aðalsteinsson
ÚtJon Andre Royrane
Hafþór fyllir skarð Ove Brenne í hjarta varnarinnar. Royrane, markaskorari Selfyssinga, er ekkert alltof sáttur við þessa skiptingu.
58. mín
Babacar Sarr með þrumuskot sem Árni Snær ver.
61. mín
592 áhorfendur á vellinum í dag. Slök mæting hjá Selfyssingum miðað við mikilvægi leiksins.
ÍA
63. mín
Gult spjald

Einar Logi Einarsson

ÍA
63. mín
InnÓlafur Valur Valdimarsson
ÚtEinar Logi Einarsson
Einar Logi fær gula spjaldið og þakkar síðan fyrir sig. Theo Furness fer í bakvörðinn og Ólafur Valur á kantinn.
67. mín
Jón Daði fær fínt skallafæri eftir aukaspyrnu en boltinn fer yfir.
Selfoss
68. mín
Gult spjald

Tómas Leifsson

ÍA
70. mín
InnWentzel Steinarr Ragnarsson Kamban
ÚtAndri Adolphsson
Selfoss
70. mín
InnÓlafur Karl Finsen
ÚtTómas Leifsson
ÍA
76. mín
InnFjalar Örn Sigurðsson
ÚtJón Vilhelm Ákason
Jón Vilhelm mun ekki valda meiri usla í vörn Selfyssinga í dag.
Selfoss
83. mín
InnIngólfur Þórarinsson
ÚtLuka Jagacic
89. mín
Viðar Örn með hörkuskot sem Árni Snær ver í horn.
ÍA
90. mín
Gult spjald

Fjalar Örn Sigurðsson

90. mín
Leiknum er lokið með 3-1 sigri ÍA. Selfyssingar liggja svekktir á vellinum enda eru þeir fallnir niður í 1. deild. Nánari umfjöllun og viðtöl hér á Fótbolta.net síðar í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.