Fotbolti.net
@MistRunarsdottiMist Rúnarsdóttir
Mist Rúnarsdóttir
Pepsi-deild karla
KR-völlur
KR
KR
3 - 0
Keflavík
Keflavík
Magnús Þór Magnússon (f) (sjm) 1'1 - 0Guðmundur Reynir Gunnarsson 48'2 - 0Þorsteinn Már Ragnarsson 57'3 - 0
Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr.
0. mín
Heil og sæl! Velkomin í beina textalýsingu frá leik KR og Keflavíkur í 22. og þar með lokaumferð Pepsi-deildarinnar 2012. Byrjunarliðin eru klár og má sjá hérna sitt hvoru megin við textann. Athygli vekur að Guðmundur Steinarsson er í byrjunarliði Keflavíkur en óttast var að hann hefði jafnvel leikið sinn síðasta leik á ferlinum eftir að hann meiddist á hné í síðasta leik gegn Breiðablik.
0. mín
Það eru 7 mínútur í leik og það er afar fámennt í stúkunni sem stendur. Vonandi bætist þó aðeins við af áhorfendum. Þóroddur Hjaltalín Jr. mun dæma leikinn og honum til aðstoðar verða Einar Sigurðsson og Bryngeir Valdimarsson. Varadómari er Þórður Már Gylfason og Jón Þór Ágústsson er eftirlitsmaður.
1. mín
Þetta er byrjað. Keflvíkingar byrja með boltann og sækja í átt að Miklubrautinni. KR-ingar í átt að íþróttahúsinu.
KR
1. mín
MAAAARK!

Magnús Þór Magnússon (f) (sjm)

KR-ingar eru komnir yfir strax á fyrstu mínútu. KR fékk aukaspyrnu á miðjum vellinum. Sendu boltann út til hægri á Viktor Bjarka sem náði góðri sendingu fyrir markið. Eftir barning í teignum endar boltinn í netinu. Emil Atlason og Þorsteinn Már voru í boltanum en svo virðist sem að boltinn hafi að endingu farið af varnarmanni Keflavíkur og að um sjálfsmark sé að ræða. Það var þó erfitt að sjá.
KR
10. mín
InnBjörn Jónsson
ÚtBaldur Sigurðsson
KR-ingar þurfa að gera breytingu. Baldur Sigurðsson þarf að fara útaf vegna meiðsla og inn á kemur Björn Jónsson.
11. mín
Guðmundur Steinarsson reynir skot utan af vellii. Ágætis skot en Hannes ver vel og heldur boltanum.
15. mín
Hættuleg sókn hjá KR. Það kemur fyrirgjöf frá vinstri. Emil Atlason fær boltann í teignum og á skot að marki. Mjög gott færi en Ómar Jóhannsson er vel staðsettur og sér við Emil.
16. mín
Hinum megin á vellinum á Guðmundur Steinarsson hörkuskalla að marki eftir fyrirgjöf frá vinstri. Hannes Þór bjargar KR með sannkallaðri sjónvarpsvörslu.
17. mín
Ljubicic á tvær skottilraunir í röð en ekkert verður úr þeim.
18. mín
KR-ingar sækja. Gary Martin á skot úr teignum sem Ómar ver út í teig. Boltinn berst á Atla Sigurjóns sem neglir í nærhornið en Ómar ver með fótunum og boltinn fer aftur fyrir. Ekkert verður úr horninu.
23. mín
Atli Sigurjónsson reynir viðstöðulaust skot utan teigs. Ómar er í vandræðum með að halda boltanum en Þorsteinn Már er aðeins of seinn til að nýta sér frákastið og Magnús Þór nær að stíga hann út.
25. mín
Flott sókn hjá Keflavík. Jóhann Birnir brýst upp vinstri kantinn og sendir góðan bolta inn í teiginn. Þar fær Hörður Sveinsson hellings pláss en setur boltann framhjá fjærstönginni.
29. mín
Tvær hornspyrnu í röð hjá KR. Ómar þarf að blaka þeirri fyrir aftur fyrir og sú seinni virtist stefna beint á kollinn á Gary Martin en hann nær ekki til boltans.
32. mín
Jóhann Ragnar Benediktsson á hörkuskot rétt framhjá af löngu færi. Boltinn barst til hans eftir hornspyrnu og hann negldi honum að marki, þarna munaði ekki miklu.
36. mín
Hörður Sveinsson á skalla nokkrum sentimetrum framhjá stönginni á KR-markinu. Það er að lifna yfir gestunum.
37. mín
Og aftur er skallafæri hjá Keflavík. Í þetta skiptið flikkar Hörður boltanum áfram á Einar Orra sem bíður á fjærstönginni en hittir boltann illa og setur hann afturfyrir úr upplögðu færi.
39. mín
Frans Elvarsson á frábæra sendingu inn á Hörð Sveinsson sem hleypur inn í teig á milli tveggja varnarmanna. Boltinn dettur fyrir framan Hörð sem hittir ekki á markið úr dauðafæri.
42. mín
Þorsteinn Már á skot að marki Keflavíkur en það er ekki nógu fast og Ómar ver örugglega.
KR
45. mín
Rautt spjald

Viktor Bjarki Arnarsson

Viktor Bjarki er rekinn útaf hérna. Ekki sá ég hvað gerðist en hann hlýtur að hafa sagt eitthvað virkilega ljótt því þetta var ekki vegna leikbrots.
45. mín
Þetta hefur verið nokkuð fjörugur leikur. KR-ingar byrjuðu af krafti og voru betra liðið framan af. Keflvíkingar hafa þó verið að sækja í sig veðrið síðasta korterið eða svo og verið líklegri. Það verður fróðlegt að sjá hvernig 10 KR-ingum mun reiða af í síðari hálfleik en Viktor Bjarki fékk að líta rauða spjaldið á lokamínútu fyrri hálfleiksins. Sagan segir að hann hafi spurt dómaratríóið hvort þeir væru þroskaheftir en við heyrðum það að sjálfsögðu ekki alla leið upp í blaðamannastúku og þorum því ekkert að fullyrða um slíkt.
KR
46. mín
InnAron Bjarki Jósepsson
ÚtBjörn Jónsson
KR-ingar gera eina breytingu í hálfleik. Varamaðurinn Björn Jónsson staldraði stutt við á vellinum og fer útaf. Aron Bjarki kemur inná og fer í hægri bakvörðinn.
KR
48. mín
MAAAARK!

Guðmundur Reynir Gunnarsson

KR-ingar byrja síðari hálfleikinn af sama krafti og þann fyrri og eru komnir í 2-0. Emil Atlason kom boltanum inn fyrir á Þorstein Má, hann var kominn einn gegn Ómari en Ómar náði að komast fyrir skot hans. Boltinn hrökk af Ómari og var á leið í markið en þar var Guðmundur Steinarsson mættur til að bjarga. Björgunin var þó ekki betri en svo að hann setti boltann beint út í teiginn aftur þar sem að vinstri bakvörðurinn Guðmundur Reynir var mættur til að hamra boltann í netið.
53. mín
KR-ingar fá aukaspyrnu rétt utan við vítateigslínuna vinstra megin. Brotið var á Þorsteini Má sem var kominn á fulla ferð að marki. Bjarni tekur aukaspyrnuna og pikkar boltanum á Atla sem á fínt skot, rétt yfir markið.
KR
57. mín
MAAAARK!

Þorsteinn Már Ragnarsson

KR-ingar eru komnir í 3-0. Atli Sigurjónsson tekur hornspyrnu á nærstöng. Boltinn berst á Grétar Sigfinn sem kemur honum áfram á Þorstein Má Ragnarsson sem er grimmastur í teignum og kemur boltanum yfir marklínuna.
60. mín
Keflavík fær aukaspyrnu rétt utan teigs. Guðmundur Steinarsson á hörkuskot framhjá veggnum og niður í hægra hornið en Hannes ver glæsilega.
Keflavík
66. mín
InnMagnús Sverrir Þorsteinsson
ÚtViktor Smári Hafsteinsson
Keflvíkingar með sína fyrstu skiptingu. Sóknarmaður fyrir varnarmann.
73. mín
Það er ekki að sjá að KR-ingar séu manni færri. Þeir eru miklu betri hérna.
73. mín
Dauðafæri hjá KR. Gary Martin rennir boltanum fyrir Atla Sigurjóns sem er mættur einn í teiginn. Hann missir hinsvegar jafnvægið og hrasar áður en hann nær almennilegu skoti og Ómar nær boltanum.
Keflavík
79. mín
InnDenis Selimovic
ÚtGuðmundur Steinarsson
Keflavík
79. mín
InnHilmar Geir Eiðsson
ÚtBojan Stefán Ljubicic
Tvöföld skipting hjá gestunum. Spurning hvort varamennirnir nái að rífa liðið sitt í gang en Keflvíkingar hafa verið arfaslakir í síðari hálfleik.
Keflavík
84. mín
Gult spjald

Magnús Þór Magnússon (f)

Fyrsta gula spjaldið fer á loft. Magnús Þór fær að líta það fyrir brot á Þorsteini Má.
85. mín
Jóhann Birnir á skot rétt utan teigs. Boltinn fer af varnarmanni og í horn en KR-ingar bægja hættunni frá.
Keflavík
87. mín
Gult spjald

Einar Orri Einarsson

Einar Orri straujar Emil Atlason og fær að líta gula spjaldið. Pirringsbrot.
89. mín
Magnús Sverrir gerir vel og kemst í skotfæri vinstra megin í teignum. Hann lætur vaða en Hannes er vel á verði og ver frá honum. Varnarmenn KR hreinsa frá í kjölfarið.
90. mín
Gary Martin reynir skot vinstra megin í teignum. Hann sneri á varnarmenn og reyndi að leggja boltann í fjærhornið úr heldur þröngu færi en Ómar ver í horn.
Keflavík
90. mín
Gult spjald

Jóhann Ragnar Benediktsson

Jóhann Ragnar brýtur á Gary Martin rétt utan teigs vinstra megin og fær að líta gula spjaldið. Gary tekur spyrnuna sjálfur og sendig boltanum fyrir með jörðinni. Keflvíkingar ná að hreinsa og í kjölfarið flautar Þóroddur dómari til leiksloka.
Leik lokið!
Öruggur KR-sigur í Vesturbænum og KR-ingar ljúka Íslandsmótinu í fjórða sæti. Keflvíkingar sitja hinsvegar áfram í 9. sæti og enda mótið þar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.