0. mín
Verið velkomin í beina textalýsingu af leik Fram og ÍBV. Framarar reyna að bjarga sér frá falli í síðustu umferðinni á meðan ÍBV er að reyna að tryggja sér annað sæti deildarinnar.
0. mín
Ein breyting er á liðinu hjá ÍBV. Andri Ólafsson kemur inn fyrir Rasmus Christiansen.
0. mín
Hólmbert Aron Friðjónsson kemur inn í liðið hjá fram fyrir Sam Tillen. Þá kemur Helgi Andrésson á bekkinn fyrir Sveinbjörn Jónasson.
0. mín
Mikill spenningur fyrir þessa lokaumferð. Ef ÍBV sigrar með tveimur mörkum gegn engu þá þarf Selfoss að vinna ÍA 4-0. Það er allt eða ekkert í dag hjá þessum liðum, ÍBV er líka í baráttu um Evrópusæti, svo þeir slaka ekkert á í dag.
0. mín
Leikmenn eru komnir út á völl og allt að hefjast hérna í Laugardalnum.
1. mín
Leikurinn er hafinn!
2. mín
Almarr Ormarsson kemst í fínt færi, en Abel Dhaira ver í horn.
10. mín
Hornspyrna hjá Fram. Hólmbert nær skoti, en boltinn fer í hliðarnetið.
11. mín
Sam Hewson með hörkuskot, sem er nálægt því að fara inn þar sem boltinn hafði viðkomu af varnarmanni!
22. mín
Gult spjald
Brynjar Gauti Guðjónsson
26. mín
Christian Steen Olsen með hörkuskot! Ögmundur ver þetta glæsilega í horn!
35. mín
Það er mest lítið að frétta úr þessum ágæta leik. Eins og staðan er núna þá þarf ÍBV mark, en Fram er í ágætis málum. Jafnt í leik Selfyssinga og Skagamanna.
38. mín
MAAAARK!
Tryggvi Guðmundsson
38. mín
TRYGGVI GUÐMUNDSSON AÐ SKORA!! Guðmundur Þórarinsson með hornspyrnu sem ratar beint á kollinn á Tryggva, sem skorar!
40. mín
InnOrri Gunnarsson
ÚtHólmbert Aron Friðjónsson
40. mín
Hólmbert fer meiddur af velli og inn á kemur Orri Gunnarsson.
45. mín
Hálfleikur! Fram er nokkuð öruggt í Pepsi-deildinni á næsta ári, Selfoss er að tapa 1-3. ÍBV með þrjú stig í höndum sér, en þetta er ekki búið!
46. mín
Leikurinn er hafinn að nýju!
52. mín
MAAAARK!
Samuel Hewson
52. mín
SAMUEL HEWSON AÐ SKORA!! Kristinn Ingi skaut á markið, Dhaira varði, en hann fékk frákastið og lagði hann fyrir Hewson sem skoraði örugglega.
56. mín
Framarar nálægt því að komast yfir!! Orri Gunnarsson skýtur yfir á fjærstönginni
62. mín
Framarar að spila síðari hálfleik frábærlega, það styttist í mark númer tvö hjá þeim.
66. mín
Almarr Ormarsson skýtur framhjá þarna í teignum, hann var liggjandi þegar hann tók skotið.
71. mín
Orri Gunnarsson með skot rétt yfir markið, hann hefur verið duglegur að koma sér í færi.
89. mín
MAAAARK!
Almarr Ormarsson
89. mín
ALMARR ORMARSSON ÞVÍLÍKT MARK!! Hann spænir sig í gegnum vörn ÍBV og skorar framhjá Abel!!
90. mín
ÍBV fer í þriðja sætið þar sem Breiðablik er að vinna Stjörnuna.
90. mín
LEIK LOKIÐ! 2-1 fyrir Fram. ÍBV í þriðja sæti deildarinnar, en Fram í 10. sætinu.



