Fotbolti.net
@fotboltinetBjörn Steinar Brynjólfsson
Pepsideild karla
Grindavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
2 - 2
Fylkir
Fylkir
Alex Freyr Hilmarsson 62'1 - 01 - 170' Ingimundur Níels Óskarsson 1 - 282' Björgólfur TakefusaHafþór Ægir Vilhjálmsson 97'2 - 2
0. mín
Komiði sæl og verið hjartanlega velkomin á síðasta deildarleik í Pepsideildinni. Leikur þessi skiptir litlu máli. Þar sem heimamenn eru nú þegar farnir niður um deild og Fylkir búnir að tryggja sér sæti meðal bestu að ári. En býst ég nú við markaleik og ég ætla að reyna segja mér það að Grindvíkingar ætla að kveðja deildina með stolti og gefa allt í þetta. Ásamt því að Fylkir láta ekki sitt liggja eftir og eiga eftir að spila stíft á heimamönnum.
22. mín
Það er vandamál með internet á Grindavíkurvelli og því eru uppfærslur af skornum skammti enn sem komið er. Ekkert stórt er þó búið að gerast.
30. mín
Það er ekki mikið að gerast í leiknum ennþá, hættulegasta færið átti Ian Willamsson en Kristján Finnbogason varði glæsilega. Skömmu áður átti Magnús Þórir skot hægra megin í teignum sem Óskar varði í horn. Á 6. mínútu átti Hafþór Ægir skot í innanverða stöngina eftir aukaspyrnu. Það er mjög mikill vindur á Grindavíkurvelli og aðeins 1 gráða í hita.
45. mín
Það er kominn hálfleikur. Grindavík fékk þrjú færi í lokin. Magnús Björgvinsson fékk tvö þeirra, fyrst skaut hann yfir og svo var hann einn á móti markmanni og skaut framhjá. Matthías Örn átti svo frábæra sendingu iin fyrir vörnina, Alex Freyr átti gott viðstöðulaust skot en Kristján Finnbogason greip boltann.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn.
Grindavík
62. mín
MAAAARK!

Alex Freyr Hilmarsson

Alex Freyr lagði boltann framhjá Kristjáni eftir að Williams sendi innfyrir á hann.
Fylkir
70. mín
MAAAARK!

Ingimundur Níels Óskarsson

Eftir hornspyrnu hjá Fylki skoraði Ingimundur Níels og Óskar Pétursson markvörður Grindavíkur meiddist við þetta og liggur enn eftir á vellinum.
73. mín
Óskar er staðinn upp og ætlar að klára leikinn.
Grindavík
80. mín
InnBenóný Þórhallsson
ÚtÓskar Pétursson
Óskar getur ekki spilað meira vegna meiðslanna í markinu. Ægir kemur því inná í sínum fyrsa meistaraflokksleik.
Fylkir
82. mín
MAAAARK!

Björgólfur Takefusa

Ingimundur tók boltann af Ólafi Erni og sendi á Björgólf sem skoraði framhjá Ægi.
Grindavík
97. mín
MAAAARK!

Hafþór Ægir Vilhjálmsson

Leiknum er lokið með 2-2 jafntefli. Afmælisbarnið Hafþór Ægir Vilhjálmsson átti síðustu spyrnu leiksins úr aukaspyrnu. Kristján Finnbogason las boltann vitlaust þar sem að vindur átti mikil áhrif á hvert boltinn fór. Viðtöl og meiri umfjöllun síðar í dag. Það voru 286 áhorfendur í Grindavík í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.