SKÝRSLAN: Umdeilt mark réði úrslitum í efri byggðum Kópavogs
Hvað réði úrslitum?
Ég ætla bara að segja að dómarinn réði úrslitum í dag. Dómarinn hefði átt að dæma hendi á Atla Þór í aðdraganda marksins og maður skilur vel pirring Fylkismanna. Einnig getur maður sagt að skiptingarnar hans Ómars hafi ráðið úrslitum. Atli þór kemur inn og býr eiginlega bara til markið sjálfur.
Bestu leikmenn
1. Örvar Eggertsson (HK)
Mér fannst hann vera mjög góður í dag. Hann var sífellt að ógna með krafta sínum og hraða og átti þetta sigurmark alveg fullkomnlega skilið. Hann er búinn að skora í öllum fjórum leikjum HK í deildinni í sumar og er með mjög mikið sjálfstraust þessa daganna.
2. Leifur Andri Leifsson (HK)
Fyrirliðinn átti frábæran leik. Hann stoppaði allaveganna einu sinni mjög hættulega skyndisókn hjá Fylki sem hefði endað líklegast með mjög hættulegu skoti ef hann hefði ekki farið í þessa geggjuðu tæklingu. Yfirvegaður líka á boltanum og átti bara mjög góðan leik í dag.
Atvikið
Það er ekkert annað í heiminum sem kemur til greina en að velja aðdragandann í sigurmarki HK. Það sást langar leiðir að boltinn fór í höndina á Atla Þór þegar hann er að fara framhjá Orra áður en hann skaut á markið og Örvar fylgdi svo eftir. Rúnar Páll var líka alls ekki sáttur með þessa ákvörðun dómarans og ég skil hann mjög vel.
Hvað þýða úrslitin?
HK eru komnir í þriðja sætið þegar þetta er skrifað en það eru fleiri leikir spilaðir í dag og allt getur gerst. Fylkismenn eru þó enn í neðri hlutanum með þrjú stig í níunda sæti þar til annað kemur í ljós.
Vondur dagur
Það er auðvitað hægt að fara beint í dómarann en ég ætla að velja leikmann og vel Orra Svein. Allavegana við fyrstu sín fannst mér eins og Orri hefði getað gert mikið betur í baráttu hans við Atla Þór í aðdraganda sigurmarksins. Það getur verið að það hafi truflað hann þegar boltinn fór í höndina á dómaranum en hann átti að hreinsa boltanum í burtu á meðan hann gat það.
Dómarinn - 3.5
Einar Ingi hefur átt mun betri daga. Mér fannst dómgæslan mjög furðuleg í leiknum og þá sérstaklega í sigurmarki HK þar sem boltinn fer bara í höndina á Atla Þór. Fylkismenn eru réttilega mjög ósáttir í dag út í Einar og ég skil þá mjög vel. Léleg dómgæsla í dag að mínu viti.




