SKÝRSLAN: Felix með boltann fyrir frá vinstri
Hvað réði úrslitum?
Eyjamenn settu í einhvern allt annan gír við mark Keflavíkur eftir að hafa lent undir og gerðu út um leikinn á níu mínútna kafla. Varnarleikur Keflavíkur í eigin teig hrundi á sama tíma og þótt menn geti vissulega skrifað eitt til tvö mörk á óheppni þá segja margir þessara sömu manna að menn skapi sér sína eigin heppni.
Bestu leikmenn
1. Felix Örn Friðriksson
Fyrirgjafir hans áttu þátt i öllum þremur mörkum Eyjamanna. Frábær fótur sem tekur virkan þátt í sóknarleik ÍBV auk þess sem hann verst í langflestu falli vel.
2. Tómas Bent Magnússon
Margir fyrirkallaðir í þennan reit úr liði ÍBV en ég tek Tómas Bent út fyrir sviga þar sem mér fannst hann virkilega góður á miðju ÍBV í dag og þá sérstaklega í síðari hálfleik. Öflugur leikmaður sem mér finnst vera vaxandi.
Atvikið
Þessi níu mínútna kafli sem ÍBV skorar þrjú mörk eins og hann leggur sig. Felix með boltann fyrir frá vinstri og mark. Uppskrift sem gaf mjög vel á þessum kafla.
Hvað þýða úrslitin?
Eyjamenn fara í sex stig og sitja í sjötta sæti deildarinnar. Keflvíkingar með sín fjögur stig í því áttunda.
Vondur dagur
Varnarlína Keflavíkur fær þetta á sig fyrir þennan níu mínútna kafla. Hverju sem um er að kenna finnst varnarmanni aldrei í lagi að fá á sig þrjú mörk á níu mínútum.
Dómarinn - 8
Erlendur hafði fín tök á þessum leik, þurfti ekki að taka einhverjar risa ákvarðanir en gerði sitt vel og af fagmennsku.



