Fotbolti.net
Besta deildin
@mattimattMatthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
FH
FH
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
Sól, 5 gráður úti. Semsagt frábært gluggaveður. Völlurinn lítur betur út en síðast en það þýðir ekki að um frábærar aðstæður sé að ræða
3 - 0
KR
KR
Kjartan Henry Finnbogason 2'1 - 0Björn Daníel Sverrisson 54'2 - 0Kjartan Henry Finnbogason 60'3 - 0
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: FH ósigraðir á Miðvelli

Hvað réði úrslitum?

Vallaraðstæður voru ekki boðlegar og leikurinn bauð ekki upp á áferðarfallega knattspyrnu. Mikið um langa bolta og klafs. Tvö mörk Kjartans Henry gegn sínum gömlu félögum spila stóran þátt í þessum úrslitum.

Bestu leikmenn

1. Kjartan Henry Finnbogason

Tvö mörk og fyrra markið strax á annarri mínútu. Erfitt að líta framhjá KHF í dag.

2. Sindri Kristinn Ólafsson

Átti stórgóðan leik í marki FH og gárungar segja að um sé að ræða besta leik hans í FH búningnum til þessa.

Atvikið

Fyrsta mark FH án nokkurs vafa. Vuk Oskar skallar boltann inn í teiginn og þar er Kjartan Henry staddur í D-boganum og tekur bakfallspyrnu og boltinn sveif í loftinu yfir Simen í markinu. Frábært mark

Hvað þýða úrslitin?

FH er eins og staðan er þegar þetta er skrifað í 2 sæti deildarinnar en önnur lið eiga leik til góða, þeir leikir eru í gangi eða fara fram í dag. KR eru hinsvegar í 8. sæti deildarinnar og hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum 3 - 0 sem er áhyggjuefni fyrir þjálfarateymi KR.

Vondur dagur

Simen Kjellevold markmaður KR átti arfaslakan leik. Staðsetningar hans í tveimur mörkum FH er eitthvað sem gerir það að verkum að FH skorar. Þriðja markið er svo bolti sem hann missir frá sér og Kjartan Henry lúrir þar sem hann á að lúra til þess að skora.

Dómarinn - 9

Virkilega flottur leikur hjá Helga Mikael. Hef ekkert út á hann að setja þannig lagað.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.