Fotbolti.net
Besta deildin
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Mjög góðar miðað við síðustu daga.
1 - 0
KA
KA
Gunnar Vatnhamar 87'1 - 0
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

SKÝRSLAN: Víkingur elskar að skora í lokin gegn KA

Hvað réði úrslitum?

Þetta var mikil skák, KA átti fyrsta kaflann, svo var jafnræði og Víkingur átti lokakaflann. Það þurfti eitt augnablik og það féll með Víkingum í þetta skiptið. Það er aldeilis ekki í fyrsta skiptið sem Víkingur skorar í lokin gegn KA. Liðin mættust þrisvar í fyrra og skoraði Víkingur í öllum leikjunum á lokakaflanum. Í tvígang tryggði það sigur og einu sinni komust Víkingar yfir en KA menn náðu að svara til baka. Þetta er því fjórði leikurinn í röð sem Víkingur skorar á 87. mínútu eða síðar gegn KA!

Bestu leikmenn

1. Gunnar Vatnhamar

Skoraði sigurmarkið, sá plássið inn á vítateignum og keyrði á það. Fyrirgjöfin frábær og skallinn óverjandi. Hefur komið vel inn í lið bikarmeistaranna.

2. Dusan Brkovic

Heilt yfir frábær í leiknum og hann og Ívar gera hrikalega sterkt tilkall í að vera besta miðvarðaparið í deildinni. Er kominn til baka inn á teiginn í markinu, í stöðu en er kannski sekúndu frá því að geta litið upp og séð Gunnar koma á ferðinni.

Atvikið

Sigurmarkið. Dusan brýtur á Nikolaj í skallaeinvígi en Vilhjálmur veitir hagnað. Viktor Örlygur tekur við boltanum, kemur honum út á Karl Friðleif sem á frábæra fyrirgjöf inn á teiginn og Gunnar Vatnhamar endar langan sprett sinn í lausu svæði inn á teignum og skallar boltann í netið. Enginn sem eltir Gunnar í hlaupinu og þrír KA menn að dekka tvo inn á teignum.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur er áfram með fullt hús stiga, með tólf stig og markatöluna 8:0. KA er sjö stigum á eftir með fimm stig.

Vondur dagur

Sóknarleikur liðanna var erfiður og mikil skák í gangi. Pætur Petursson lét ekki mikið fyrir sér fara í þessum leik. Svo finnst mér Bjarni hreinlega eiga að gera mikið betur þegar hann kemst einn gegn Ingvari. Ég er svo ekki búinn að sjá atganginn í lokin og það sem KA menn eru ósáttir við utan vallar. Ef það er rétt að Víkingar eru systematískt að sparka boltum í burtu og sendandi boltasækjara í burtu á mikilvægum augnablikum þá er það ekki gott mál.

Dómarinn - 3,5

Fram að markinu fannst mér Vilhjálmur heilt yfir hafa dæmt vel, auðvitað brot hér og þar sem menn voru ekki sáttir við en línan heilt yfir góð. Vel gert að veita hagnað í markinu en svo einhvern veginn fór allt í vaskinn. Vilhjálmur fór að flauta á menn hendandi sér niður. Pablo er frábær en það vita allir að hann er klókur og hendir sér niður, Sveinn Gísli stakk sér einnig til sunds og Vilhjálmur las það ekki. Ótrúlegt að horfa upp á þetta og leyfði Víkijngum að drepa leikinn í lokin. Eftir vel dæmdan leik að mínu mati voru það mikil vonbrigði að sjá þennan reynslumikla dómara falla í þessa gryfju.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.