Fotbolti.net
Besta deildin
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Valur
Valur
Besta-deild karla
Origo völlurinn
Sólin á lofti en það blæs aðeins
3 - 2
Stjarnan
Stjarnan
Andri Rúnar Bjarnason 6'1 - 0Adam Ægir Pálsson 35'2 - 02 - 180' Ísak Andri Sigurgeirsson2 - 288' Ísak Andri SigurgeirssonBirkir Heimisson 96'3 - 2
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Ísak bauð upp á sýningu en hún var eyðilögð með flautumarki

Hvað réði úrslitum?

Valur spilaði mjög vel í fyrri hálfleiknum heilt yfir og voru 2-0 yfir að honum loknum. Þeir voru með stjórn leiknum alveg fram á 80. mínútu og voru að verjast mjög vel. Svo gerist eitthvað. Stjarnan gerir þrefalda skiptingu og fær stúkuna alveg með sér. Það kviknar á mönnum og þær ná að jafna á augabragði. En það eru mikil gæði í þessu Valsliði. Maður hélt að þeir væru orðnir bensínlausir en þeir sýndu mikinn karakter og kláruðu leikinn með stórkostlegri sókn í lokin. Það virðist vera mikið hungur í þessu Valsliði og það er ekki gott fyrir önnur lið.

Bestu leikmenn

1. Ísak Andri Sigurgeirsson (Stjarnan)

Stjarnan er með besta leikmann deildarinnar í sínum röðum. Hann er allavega að spila þannig í augnablikinu. Hann verður ekki lengi í þessari deild, það er bókað mál. Þvílík gæði sem hann er með og varnarmenn Vals áttu mjög erfitt með hann.

2. Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)

Ísak Andri er með mikil gæði og það sama gildir um Kristin Frey. Frábær inn á miðsvæðinu hjá Val í dag og fór fyrir sínu liði. Átti stóran þátt í sigurmarkinu. Það er hægt að nefna fleiri hérna en Orri Hrafn Kjartansson var næstur þessu. Hann er búinn að leika afskaplega vel upp á síðkastið.

Atvikið

Auðvitað sigurmarkið, flautumarkið, í uppbótartímanum. Ótrúleg dramatík á Hlíðarenda!

Hvað þýða úrslitin?

Valur er með níu stig og er í toppbaráttunni eftir fjórar umferðir. Stjarnan er bara með þrjú stig og það er áhyggjuefni fyrir liðið og fyrir þjálfarana. Ekki nógu gott fyrir Garðbæinga.

Vondur dagur

Hilmar Árni Halldórsson fann sig ekki á miðsvæðinu. Hann er enn að koma sér í gang eftir meiðsli og maður sér það alveg. Sigurður Egill átti ekki sinn besta dag en bætti upp fyrir það með því að leggja upp sigurmarkið. Þá er þetta bara heilt yfir ekki góður dagur fyrir Stjörnuna; það er ansi vont að fá þetta högg og vera með þrjú stig eftir fjóra leiki. Það er ansi stór leikur gegn Breiðabliki næst.

Dómarinn - 3

Jóhann Ingi dæmdi vel framan en ég verð að draga hann mikið niður fyrir það þegar hann dæmir brot í marki sem Stjarnan skorar í seinni hálfleik. Það voru stór mistök að mínu mati. Hlynur Freyr fer niður en mér fannst það mjög mjúkur dómur. Það hefur mikil áhrif á leikinn að hann dæmir brot þar en staðan var þá 2-1 fyrir Val. Hvað hefði gerst ef það mark hefði fengið að standa? Staðan 2-2 og enn meiri tími eftir. Mér fannst hann klikka þarna í mjög stórri ákvörðun. Svo klikkaði teymið aftur þegar Sigurbergur Áki átti að fá rautt spjald fyrir að slá Aron Jóhannsson stuttu eftir að markið var dæmt af.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.