SKÝRSLAN: Stjörnukonur stimpla sig inn
Hvað réði úrslitum?
Stjarnan var bara betra liðið í leiknum. Þær stjórnuðu honum frá til A-Ö og ÍBV komst lítið áfram. Mjög fagmannlega gert hjá Stjörnukonum í dag.
Bestu leikmenn
1. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Stjarnan)
Gunnhildur var flott á miðjunni í dag og skilaði góðu dagsverki. Hún var grjóthörð eins og venjulega og kórónaði svo góðan leik með eina marki leiksins sem hún kláraði vel fram hjá Guðnýju
2. Sædís Rún Heiðarsdóttir (Stjarnan)
Sædís átti líka mjög góðan leik í dag. Hún var að ógna fram á við með góðum boltum og svo var hún líka mikilvæg í varnarleik Stjörnunnar en það var sjaldan sem að eyjakonur fóru framhjá henni. Aníta Ýr gerir sterkt tilkall um að vera hér líka en hún var frábær í dag.
Atvikið
Í leik þar sem að lítið var um stór atvik verður þetta að vera markið frá Gunnhildi sem að skildi liðin af þegar flautað var til leiksloka.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan stimpla sig inn og sækja sín fyrstu stig á tímabilinu og ÍBV er áfram með þrjú stig.
Vondur dagur
Sóknarleikur ÍBV var ekki upp á marga fiska í dag. Þær komust lítið áfram og áttu erfitt með að halda í boltann. Það var ekki að sjá að það væri mikið plan fram á við nema það að setja hann langan og vona það besta.
Dómarinn - 9
Þórður og hans teymi bara flottir í dag. Línan var skýr og hann var ekki að nota flautuna að óþörfu og leyfði leiknum að rúlla. Nokkur atvik þar sem hann hefði mátt flauta en hann tók engar stórar rangar ákvarðanir.



