SKÝRSLAN: Ákveðin draumabyrjun hjá tvöföldu meisturunum
Hvað réði úrslitum?
Valur er það gott lið að þær refsa grimmilega fyrir mistök, og það gerðu þær í fyrra markinu sem þær skoruðu. FH spilaði mjög mjög háa línu og var Valur mikið að finna svæðin á bak við, sérstaklega í fyrri hálfleik. Það skilaði öðru markinu en Ásdís Karen kláraði mjög vel þar. Annars fékk FH líka góð færi til að skora en nýtti þau ekki. Valsliðið er með mikil gæði og þær eru ansi góðar í að vinna fótboltaleiki.
Bestu leikmenn
1. Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)
Skorar bæði mörk Vals í leiknum og var mjög ógnandi. Með mjög góð hlaup á bak við vörnina.
2. Fanney Inga Birkisdóttir (Valur)
Þessi efnilegi markvörður er búin að halda hreinu í fyrstu tveimur leikjum sínum í Bestu deildinni. Var gríðarlega örugg í dag og varði einu sinni meistaralega. Elísa Viðarsdóttir komst annars næst því að vera í þessum dálki en hún átti mjög flottan leik í hægri bakverðinum hjá Val.
Atvikið
Þegar Fanney Inga varði stórkostlega frá Elísu Lönu í fyrri hálfleik. Þvílík markvarsla en FH hefði jafnað metin í 1-1 ef sá bolti hefði legið inni. Hvernig hefði leikurinn farið þá?
Hvað þýða úrslitin?
Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Vals eru á toppnum með fullt hús stiga á meðan nýliðar FH eru án stiga eftir fyrstu tvo leikina. Þetta hefur verið ákveðin draumabyrjun fyrir meistarana sem hafa ekki enn fengið á sig mark. Þær geta þó enn spilað betur, ég hef trú á því.
Vondur dagur
Aftasta lína FH-inga átti ekki sinn besta dag í fyrri hálfleiknum. Vigdís Edda, sem kom ný inn í vörnina, gerði slæm mistök í fyrra markinu og svo tókst Valskonum að spila mikið á bak við vörnina hjá FH. Varnarlínan var traustari í seinni hálfleiknum en það breytti ekki útkomu leiksins, því miður fyrir FH.
Dómarinn - 6,5
Var stundum svolítið óviss í ákvörðunum sínum og nokkrar af litlu ákvörðunum voru vitlausar. Annars bara nokkuð vel dæmt hjá Bríeti en þetta var ekki mjög erfiður leikur að dæma.



