Fotbolti.net
Besta deildin
Laufey Harðardóttir
Tindastóll
Tindastóll
Besta-deild kvenna
Sauðárkróksvöllur
0 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 18' Taylor Marie Ziemer0 - 242' Taylor Marie Ziemer0 - 385' Andrea Rut Bjarnadóttir
Dómari: Eðvarð Eðvarðsson
Myndir: Sigurður Ingi Pálsson
Leik lokið!
Breiðablik vinnur 3-0
91. mín
Enn önnur hornspyrna
Breiðablik fær aðra hornspyrnu en Tindastóll nær að hreinsa framm
91. mín
önnur hornspyrna
fínt spyrna en Breiðablik skallar framhjá
91. mín
Hornspyrna Blikar
Áslaug Munda tekur, boltinn fer beint inní pakkann og aftur útaf í hornspyrnu
Tindastóll
89. mín
InnLara Margrét Jónsdóttir
ÚtRakel Sjöfn Stefánsdóttir
Tindastóll
89. mín
InnEyvör Pálsdóttir
ÚtHrafnhildur Björnsdóttir
Breiðablik
89. mín
InnHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
ÚtAgla María Albertsdóttir
Breiðablik
89. mín
InnClara Sigurðardóttir
ÚtÁsta Eir Árnadóttir
Breiðablik
85. mín
MAAAARK!

Andrea Rut Bjarnadóttir

84. mín
Stólarnir reyna að spila upp úr markspyrnu en boltinn endar útaf og Blikar fá innkast
81. mín
Stólar í sókn
Tindastóll með fína sókn, ná þó ekki að nýta færið
Breiðablik
79. mín
InnHafrún Rakel Halldórsdóttir
ÚtVigdís Lilja Kristjánsdóttir
Breiðablik
79. mín
InnAndrea Rut Bjarnadóttir
ÚtÍrena Héðinsdóttir Gonzalez
77. mín
Hugrún kemst í gott færi alveg uppað marki og ákveður að senda fyrir í stað þess að skjóta og blikar setja boltann í hornspyrnu
76. mín
Horrnspyrna Stólar
Stólar ná ekki að nýta sér hornspyrnuna
76. mín
Mur kemur boltanum upp hægri kantinn á Hugrún sem reynir fyrirgjöf en Bliki kemst með fótinn í boltann og Stólar fá hornspyrnu
Tindastóll
72. mín
InnKrista Sól Nielsen
ÚtMelissa Alison Garcia
Breiðablik
67. mín
InnKatrín Ásbjörnsdóttir
ÚtTelma Ívarsdóttir
66. mín
Góður kross hjá Breiðablik á vinstri kantinn, boltinn fer yfir Maríu og beint á Öglu sem keyrir á markið og nær fínu skoti en lætur Monicu verja hjá sér
64. mín
Skyndisókn
Hugrún með góða stungu á Mur sem nær fínu skoti en Telma ver vel í markinu
63. mín
Boltaskipting
Telma er ekki nógu ánægð með boltann og biður dómarann um að skipta um bolta sem er minnsta mál hjá Eðvarð
62. mín
Tindastóll kemur með langa og háa sendingu inní teig en Telma kemur vel á móti og kýlir boltann burt, Tindastóll fylgir á eftir en skotið rétt yfir
60. mín
Enn pressa Blikar
Önnur markspyrna hjá Tindastól og nú ná þær að koma boltanum aðeins hærra upp völlinn og ná ágætis spili
59. mín
Breiðablik pressar hátt og vinnur boltann eftir markspyrnu hjá Tindastól
56. mín
Aukaspyrna
Tindastóll fær aukaspyrnu rétt fyrir framan miðju. Ná því miður ekki að nýta hana og Breiðablik hreinsar framm
54. mín
enn sækja Blikar upp hægra megin
Elín með langa sendingu á Vigdísi upp kantinn sem sendir á BLika sem tekur skotið en það fer vel framhjá
50. mín
Hornspyrna
Breiðablik tekur hornspyrnu en Tindastóll nær að hreinsa boltann framm
49. mín
Aukaspyrna
Stólar taka aukaspyrnuna en Blikar komast í boltann og fara í hraða sókn sem endar í hornspyrnu
49. mín
brot
brotið á Rakel og Tindastóll fær aukaspynru rétt við miðjulínuna
48. mín
Agla með góða stungu á Írenu en Bryndís mætir henni og nær að hreinsa fram
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
45. mín
flautað til hálfleiks, Breiðablik leiðir 2-0
44. mín
fín tilraun
Mur fær stungusendingu inn fyrir og skýtur á markið en Telma ver frábærlega og boltinn fer í hornspyrnu
Breiðablik
42. mín
MAAAARK!

Taylor Marie Ziemer

Taylor fær boltann úr innkasti, snýr sér við fyrir utan teig og skýtur á markið og skorar.
40. mín
Birta með góðan sprett upp hægri kantinn með boltann en Hannah verst vel og boltinn endar útaf í markspyrnu
38. mín
Tindastóll nær að koma boltanum í burtu
37. mín
Toni með fínan kross yfir á Vigdísi sem setur boltann á Ástu sem reynir fyrirgjöf sen Hugrún kemst með fótinn fyrir og boltinn endar í hornspyrnu
35. mín
Tindastóll fær hornspyrnu og Mur skallar framhjá
31. mín
Breiðablik sækja vel og mikið upp hægri kantinn
29. mín
góð sókn
Vigdís með góða sendingu á Ástu upp hægri kantinn sem kemur með frábæra fyrirgjöf inní teig þar sem ein eða tvær Blikastúlkur eru og ná skot á markið en Monica ver frábærlega í marki Stólana
27. mín
Ásta með gott skot réett yfir slánna eftir flott spil frá írenu og Vigdísi
23. mín
Blikar í sókn
Vigdís kemur með fína sendingu frá hægri kantinum inní teig en María nær að sparka boltanum í burtu.
16. mín
Mur kemst upp með boltann og Elín mætir henni en þær rekast eitthvað saman og enda á að hlaupa útaf endalínu, á grindverkið sem er bakvið markið. Elín liggur eftir en er staðin upp og mætt aftur í leikinn
13. mín
Hornspyrnur Blikar
Breiðablik fær tvær hornspyrnur í röð en ná ekki að nýta sér þær og boltinn endar útaf í markspyrnu
10. mín
Aukaspyrna Breiðabilik
brotið á Taylor og Breiðablik fær aukaspyrnu rétt hjá vítateigsboganum Skotið fer beint á markið en Monica ver, Blikar fylgja vel á eftir og ná skoti en skotið framhjá
Breiðablik
8. mín
MAAAARK!

Taylor Marie Ziemer

Taylor fær boltann rétt fyrir utan teig vinstramegin og leggur hann snyrtilega í hægra hornið á markinu
7. mín
Stólar í færi
Mur kemur upp hægri kantinn og sendir fyrir, boltinn endar hjá Hannah vinstra megin sem skýtur en Telma ver hann rétt svo og svo bjarga þær á línu
6. mín
Taylor kemst aftur í gegn og skýtur en skotið ekki nógu fast og beint á Monicu í markinu.
5. mín
Skot
Taylor með gott skot rétt fyrir utan teig, en boltinn fer rétt yfir markið
2. mín
Stólar fá hornspyrnu
Tindastóll á langa spyrnu fram sem Mur nær en vörnin hjá Blikum setur boltann útaf í hornspyrnu. Tindastóll nær ekki að nýta sér hornspyrnuna
2. mín
Fyrsta sókn
Breiðablik á fyrstu sóknina og þær komast upp vinstri kantinn og Agla kemur með fyrirgjöf inní teig en Blikinn sem var kominn inní var rangstæð
1. mín
Leikur hafinn
Breiðablik byrjar með boltann
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Þjálfarar Breiðabliks gera tvær breytingar á byrjunarliðinu síðan úr leiknum á móti Val Taylor og Áslaug Munda koma inn í stað Karitas og Andreu Hjá Tindastól eru líka breytingar á byrjunarliðinu síðan á móti Keflavík en Melissa kemur inn fyrir Laufey
Fyrir leik
Leikurinn átti upphaflega að fara fram á Kópavogsvelli en var breytt því Breiðablik er að taka upp gervigrasið á vellinum sínum og skipta um. Í fyrstu umferðinni gerði Tindastóll markalaust jafntefli við Keflavík á heimavelli en Breiðablik tapaði úti gegn Val, 1-0.
Fyrir leik
Dómarateymið
Eðvarð Eðvarðsson dæmir leikinn í dag en hann er með þá Bergvin Fannar Gunnarsson og Arnór Bjarka Hjaltalín sér til aðstoðar á línunum. Eðvarð sem er lengst til hægri á myndinni er dómari leiksins í dag.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Tindastóls og Breiðabliks í 2. umferð Bestu-deildar kvenna. Leikurinn hefst klukkan 19:15 á Sauðárkróksvelli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.