SKÝRSLAN: Jafntefli í Úlfarsárdal
Hvað réði úrslitum?
Grindavík komst strax yfir á upphafsmínútum leiksins og Fram komst í fá færri í upphafi. Framkonur sóttu hins vegar í sig veðrið og eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn komust þær meira inn í leikinn. Fram hefði getað komist 3-1 yfir undir lok fyrri hálfleiks en allt varð fyrir ekki. Seinni hálfleikurinn var frekar jafn og hefði getað dottið á báða bóga. Jafntefli nokkuð sanngjörn úrslit hér í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Alexa Kirton
Öflug á miðjunni í dag fyrir Fram og átti afar fallegt mark eftir skot utan teigs.
2. Jóhanna Melkorka Þórsdóttir
Örugg í flestum sínum aðgerðum og var valin maður leiksins af vallarþul. Alveg hægt að nefna nokkra aðra leikmenn í báðum liðum en leyfum vallarþul að eiga þennan.
Atvikið
Hraðasókn Grindavíkur undir lok leiks. Grindavík komst hratt upp völlinn og voru í 2vs1 stöðu þegar boltinn barst til Jada sem var í frábærri stöðu til að skora frá vítateigslínunni. Henni brást þó bogalistin og skaut fram hjá markinu. Hér gat Grindavík sigurmark á lokamínútu.
Hvað þýða úrslitin?
Liðin byrja mótið á því að deila stigi. Báðum þessum liðum var spáð botnbaráttu fyrir mót af Fótbolta.net og því vel hægt að tala um 6 stiga leik í fyrstu umferð. Bæði liðin hefðu því viljað taka öll 3 stigin af hinum en svona er boltinn stundum.
Vondur dagur
Ætli það séu ekki bara skotskórnir hjá Grace annars vegar og Jada hins vegar. Grace hefði getað farið langleiðina með að tryggja Fram sigur ef hún hefði skorað úr vítaspyrnu sinni í lok fyrri hálfleiks. Jada hefði getað tryggt Grindavík sigur í lok seinni hálfleiks eftir skyndisókn en skaut fram hjá markinu.
Dómarinn - 8
Nour og hans teymi stóðu sig vel í dag og lítið hægt að kvarta yfir þeirra frammistöðu.



