SKÝRSLAN: Jafntefli í Árbænum í fyrsta leik tímabilsins
Hvað réði úrslitum?
Fylkiskonurnar áttu að vera búnar að ganga frá leiknum í fyrri hálfleik þar sem Guðrún Karítas fékk 3 færi ein á móti markmanni en klúðraði þeim öllum. Staðan var því 2-0 í hálfleik og Afturelding kom af fullum krafti inn í seinni hálfleikinn og skoraði 2. Leikurinn fjaraði svolítið út eftir það.
Bestu leikmenn
1. Karmyn Carter (Afturelding)
Karmyn gaf innblásturinn af þessari endurkomu frá Aftureldingu. Hún var mjög hættuleg, pressaði vel og skoraði eitt mark.
2. Helga Guðrún Kristinsdóttir (Fylkir)
Helga var ekki ein af markaskorurunum en hún var potturinn og pannan í sóknarleik Fylkis. Hún skapaði töluvert af færum frá vinstri kantinum bæði fyrir sig og liðsfélaga.
Atvikið
Jöfnunarmarkið var frekar skrítið þar sem Afturelding á aukaspyrnu rétt við miðlínuna. Þær setja boltan inn í teig og enginn fylkiskona er nálægt boltanum þannig að afgreiðslan er auðveld og Afturelding jafnar.
Hvað þýða úrslitin?
Liðin skilja jöfn eftir fyrsta leik deildarinnar og eru komin með 1 stig.
Vondur dagur
Guðrún Karítas Sigurðardóttir klúðraði 3 dauðafærum þar sem hún var ein á móti markmanni þannig ég verð að setja hana hér. Hún gerði svo sem vel í markinu og að koma sér í þessar stöður en húnhefði getað innsiglað sigurinn í seinni hálfleik og það tókst ekki.
Dómarinn - 10
Dómarateymið átti góðan leik, kannski ekki alveg 10 leik en þegar vallarþulur biður fólk í stúkunni um að standa upp og klappa fyrir stuðningsmanni sem er ný fallinn frá þá stoppar dómarinn leikinn til þess að leyfa leikmönnum og þjálfurum að taka þátt. Fyrir þetta fá þau fullkomið score.



