SKÝRSLAN: Fjölnir kláraði Ægi alveg í lokin
Hvað réði úrslitum?
Ægismenn fengu fullt af færum sem fóru forgörðum í kvöld. Það er svo dýrt í svona leikjum að nýta ekki færin sem maður fær og Ægismenn kynntust því svo heldur betur. En það er auðvitað líka bara hægt að nefna skiptingarnar hans Úlla. Hann setur Daníel inn á sem fiskar vítið eftir rosalegt hlaup inn á teiginn og síðan tekur Bjarni vítið. Tveir varamenn sem klára þennan leik.
Bestu leikmenn
1. Júlíus Mar Júlíusson
Var geggjaður í hjartanu og náði að loka ágætlega á Rolin. Rolin var einhvern veginn allt í öllu hjá Ægismönnum en Júlíus gerði þetta erfitt fyrir hann og fær þar með þann heiður að vera maður leiksins í kvöld.
2. Sigurjón Daði Harðarson
Hélt hreinu og átti mjög góðan leik. Átti einhver augnablik í leiknum þar sem hann hefði getað gert betur en yfir allt var hann mjög góður í dag. Hefði alveg getað sett fyrirliðann Hans Viktor eða Daníel Ingvar sem fiskaði vítið en Sigurjón fær þetta í dag.
Atvikið
Vítaspyrnan sem Daníel fiskaði fyrir Fjölni alveg í lokin. Ægismenn voru líklegri í seinni hálfleik að klára leikinn en Fjölnir fær síðan þetta víti sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Það tók ÞÞÞ langan tíma að hugsa sig um hvort hann ætti að benda á punktinn sem að hann svo gerði. Glæsilega tekið líka hjá Bjarna.
Hvað þýða úrslitin?
Ægismenn byrja á tapi og fara hundfúlir á koddann í kvöld eftir að hafa verið bara betri í seinni hálfleik og fá síðan þetta víti á sig alveg undir restina. Fjölnismenn fara hinsvegar hlægjandi úr Þorlákshöfn með þrjú stig yfir í Grafarvoginn.
Vondur dagur
Cristofer Moises Rolin. Ástæðan fyrir því að ég vel hann er einfaldlega vegna þess að hann fékk svo mikið af færum í leiknum sem hann fór illa með. Ég var búinn að ákveða að han myndi vera maður leiksins í kvöld en öll þessi færi sem fóru forgörðum gerir það að verkum að hann átti vondan dag.
Dómarinn - 7
Á eftir að sjá vítaspyrnudóminn aðeins betur aftur. Fannst þetta vera ódýrt víti þegar ég sá þetta fyrst en það eru nokkrir búnir að sannfæra mig um það að ÞÞÞ hafi tekið rétta ákvörðun. Hann tók líka langan tíma í að hugsa sig um og benti á endanum á punktinn.



