SKÝRSLAN: Leiknir tók öll þrjú stigin í Laugardal
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í þessum leik var að Leiknismenn kláruðu færin vel en Þróttur ekki eins vel.
Bestu leikmenn
1. Omar Sowe
Omar Sowe átti góðan leik í dag og endaði góðan leik á að gulltryggja sigurinn.
2. Sam Hewson
Sam Hewson átti góðan leik í dag þrátt fyrir tap. Sam var mikið í boltanum og skapaði mikið fyrir Þróttara í dag.
Atvikið
Atvikið er þegar að Leiknir komast yfir í 2-1. Á þessum tímapunkti í leiknum voru Þróttarar aðeins búnir að liggja á Leiknismönnum
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Leiknir er með þrjú stig og Þróttur án stiga eftir fyrstu umferð.
Vondur dagur
Andi Hoti átti ekki góðan dag. Hann meiddist lítillega í byrjun leiks og var hann mikið í jörðinni þangað til að honum var skipt af velli í hálfleik.
Dómarinn - 6
Elías átti bara fínan dag og dæmdi þennan leik bara ágætlega.


