SKÝRSLAN: Afturelding byrjar mótið á þremur punktum á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Afturelding spilaði góðan fótbolta og voru grimmari í sínum sóknar aðgerðum þrátt fyrir nokkur góð færi hjá Selfossi
Bestu leikmenn
1. Arnór Gauti Ragnarson
Var kraft mikill í fyrri hálfleik og skoraði verðskuldað mark en týndist aðeins í byrjun seinni hálfleiks en margar sóknir Aftureldingar voru í gegnum hann
2. Yevgen Galchuk
Varði a.m.k. tvisvar einn á móti einum og átti góð úthlaup og óheppinn að halda ekki hreinu
Atvikið
Víti Aftureldingar. Aðalbjörn var búinn að sleppa tveimur hálf vítum og gat varla sleppt i þriðja skiptið.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding ná í þrjú stig á erfiðum útivelli en voru heilt yfir betri og áttu þrjú stigin skilið.
Selfoss fara stigalausir á koddann í kvöld.
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir Selfoss liðið þar sem stærsta stjarnan þeirra Gary Martin var týndur í dag og Afturelding átti svar við öllu sem hann gerði
Dómarinn - 6/10
Hafði ekki góða stjórn á leiknum og var tæpur að missa þetta í eitthvað bull


