SKÝRSLAN: Grindvíkingar ætla sér upp um deild
Hvað réði úrslitum?
Sofandaháttur og klaufaskapur í varnarleik ÍA á 4. mínútu varð til þess að Grindvíkingar komust í 0 - 1. Við það, fóru þeir að spila þéttan varnarleik og gerðu það afskaplega vel. Leyfðu ÍA að vera með boltann en það skilaði ekki neinu.
Bestu leikmenn
1. Guðjón Pétur Lýðsson
Var fastur fyrir og er ógnandi þegar hann fær boltann með sendingagetu og skot getu sinni. Skoraði gullfallegt mark af c.a. 25 metrum.
2. Aron Dagur
Flottur leikur hjá Aroni Degi sem hafði kannski ekki mikið að gera en þegar á reyndi stóð hann sína plikt.
Atvikið
Fyrra mark Grindvíkinga á fjórðu mínútu eða eins og ég sagði í textalýsingunni:
Klaufalegt hjá Árna Marínó, afskaplega klaufalegt. Það kom hár bolti sem skoppaði inn fyrir vörn ÍA, þar er Dagur Ingi Hammer mættur og pressaði vel á Árna og náði að skalla til boltans, Árni Marínó kemur út í boltann en hikar og missir boltann inn fyrir sig og og átti Dagur ekki í vandræðum með að komast inn fyrir og setja hann í autt markið.
Hvað þýða úrslitin?
Fyrsti leikur í lengjudeildinni í sumar og eins og Jón Þór þjálfari ÍA benti réttilega í viðtali eftir leik á ráðast úrslitin í deildinni ekki í fyrstu umferð. En þetta gefur Grindvíkingum byr undir báða vængi og væntanlega einhvern höfuðverk fyrir þjálfarateymi ÍA.
Vondur dagur
Allt Skagaliðið átti slakan leik. Einfalt.
Dómarinn - 7
Fínn leikur í heildina hjá Erlendi. Smá spurningar um hversu duglegur hann var að leyfa Grindvíkingum með að fá aukaspyrnur fyrir smávægileg brot en annars bara fínt.



