SKÝRSLAN: Þrjú rauð í erfiðum aðstæðum á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Selfoss aðeins á aftur fótunum í fyrri hálfleik og voru ekki uppá sitt besta.
Fjölnir klókari í sínum aðgerðum og áttu þennan sigur skilið.
Bestu leikmenn
1. Reynir Haraldsson (Fjölnir)
Var mjög líflegur í fyrri hálfleik og var með Guðmund í vasanum og átti flotta stoðsendigu í fyrsta marki Fjölnis
2. Adrian Sanchez (Selfoss)
Var góður í vörn Selfoss og var solid, fátt sem hann gerði vitlaust
Atvikið
Set það á fyrsta rauða spjald leiksins af þremur þar sem Breki er á gulu og brýtur mjög heimskulega af sér út á miðjum velli og gerir þetta erfitt fyrir sína félaga
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnir komnir á toppinn tímabundið þessa umferð með sjö stig og ennþá taplausir en Selfoss aftur á móti í sjöunda sæti með þrjú stig.
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir Dean og Selfoss þar sem tveir leikmenn verða í banni í næsta leik og setur smá strik á breidd Selfoss í næsta leik
Dómarinn - 7,5/10
Var með ágæta stjórn og hélt góðri línu en stundum voru skrítnar ákvarðanir


