Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Skítaveður
Grótta
Grótta
2 - 2
Vestri
Vestri
0 - 126' Mikkel Elbæk JakobsenIbrahima Balde (sjm) 35'1 - 11 - 263' Vladimir TufegdzicAron Bjarki Jósepsson 83'2 - 2
Dómari: Guðgeir Einarsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Dramatík á Nesinu

Hvað réði úrslitum?

Erfitt að segja en ég ætla að segja að viljinn og karakterinn í Gróttu liðinu hafi ráðið úrslitum. Vestramenn áttu hreint út sagt bara skilið að vinna og voru betri að mínu mati. Tvö skítamörk hjá Gróttu gerðu það að verkum að leikurinn endar í jafntefli og það sýnir okkur það að Grótta getur náð í úrslit án þess að spila vel.

Bestu leikmenn

1. Mikkel Jakobsen

Skoraði fyrsta mark Vestra og var allt í öllu í sóknarleik Vestramanna. Mjög líflegur og var að valda stanslausri hættu inni í vítateig Gróttu.

2. Nacho Gil

Það sama og með Jakobsen. Stanslaus hætta frá honum og var óheppinn að ná ekki að skora í dag.

Atvikið

Annað mark Vestra. Vladimir er fyrir innan en boltinn fór af varnarmanni og þannig var þetta löglegt mark. Samt sem áður lyfti AD flagginu upp og það gerði það að verkum að varnarmenn Gróttu hættu að verjast í smá. Risa atvik í hörkuleik.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið eru ennþá án sigurs en Gróttumenn eru einnig ennþá taplaus.

Vondur dagur

Ibrahima Balde. Bara þannig að fólk misskilji þetta ekki að þá var hann mjög fínn í dag og átti ágætan leik að mínu mati. Hinsvegar skorar hann þetta sjálfsmark sem kemur Gróttu aftur inn í leikinn. Óheppinn og hann var tæpur að skora annað sjálfsmark.

Dómarinn - 7.5

Margar stórar ákvarðanir sem Guðgeir þurfti að taka í dag og mér fannst hann dæma leikinn mjög vel. Annað mark Vestra var mjög áhugavert en það var eflaust rétt ákvörðun. Það að aðstoðardómarinn lyfti upp flagginu gerði þetta verra samt sem verra. En allt í allt góður leikur hjá Guðgeiri.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.