SKÝRSLAN: Vel sóttur sigur Valsmanna
Hvað réði úrslitum?
2 mörk í röð í seinni hálfleik gerðu í raun út um leikinn. Gæði Valsmanna komu í ljós í þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Aron Jóhannsson
Öflugur sóknarlega og varnarlega. Gerir svo gæðamark.
2. Elfar Freyr Helgason
Mjög oflugur og stöðugur í sinni miðvarðarstöðu. Skilar bolta vel frá sér og stoppaði margar sóknir.
Atvikið
2 og 3 mark Valsmanna sem komu á þriggja mínútna kafla sem gerir út um leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Valur hangir enn í Víkingum í slagnum um titilinn. ÍBV er áfram í botnbaráttu þrátt fyrir flottar frammistöður inn á milli.
Vondur dagur
Sigurður Arnar Magnússon átti alls ekki góðan dag í liði ÍBV í dag. Mjög óöruggur á boltanum og gaf hann klaufalega frá sér. Það voru fleiri í liði ÍBV sem áttu vondan dag, til dæmis Sverrir Páll og Guy Smit.
Dómarinn - 6
Hallaði aðeins á ÍBV í þessum leik. Til að mynda hugsanleg vítaspyrna sem hefði getað breytt leiknum. Staðan var 1-0 fyrir Val og mark úr víti hefði augljóslega getað breytt gangi leiksins.



