SKÝRSLAN: Fjölnir enn taplausir í Lengjudeildinni
Hvað réði úrslitum?
FJölnir var betra liðið í fyrri hálfleik en náði ekki að skora. Vestramenn mættu ákveðnari í seinni hálfleik og heilt yfir fannst mér jafntefli sanngjarnt. Bæði lið fengu þó færi til að klára þetta.
Bestu leikmenn
1. Silas Songani
Sannkallaður listamaður. Unun að horfa á þennan gæja með boltann í löppunum. Býr einnig yfir gríðarlegum hraða sem bakverðir ráða oft illa við. Leggur upp jöfnunarmarkið með gullfallegum bolta.
2. Sigurjón Daði Harðarson
Einstaklega gott vald á teignum allan leikinn. Er ekki hræddur við að fara út í fyrirgjafir og gerði það margoft í dag er einnig oft að fara út úr teignum að sópa upp fyrir vörnina.
Atvikið
Færið sem Óliver Thorlacius fær í stöðunni 0-0 er besta færi tímabilsins. Ótrulegt að hann skori ekki. Sem betur fer fyrir hann bætti hann upp fyrir þetta með marki seinna í leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
FJölnismenn eru enn taplausir í öðru sæti en Vestramenn eru enn í 10 sætinu.
Vondur dagur
Bakverðir FJölnis spila mjög hátt á vellinum og eiga að spila þannig. Á móti liði eins og Vestra er þetta þó glæfralegt vegna þess hve snöggir þeir eru. Reynir réði til dæmis ekki neitt við SIlas í dag.
Dómarinn - 7
Nokkur köll eftir vítaspyrnu í dag. Held að hann hafi haft það allt rétt. Skrýtið atvik í lok fyrri hálfleiks þegar Morten Hansen sparkar Reyni niður án boltans. Dómarinn dæmdi ekkert þar sem var spes.



