SKÝRSLAN: KR-ingar tóku stigin 3 í jöfnum leik
Hvað réði úrslitum?
KR-ingar hittu í markið á meðan KA hitti í slá. Það er svona aðal munurinn á liðunum í dag. Þetta var jafn leikur en KA menn náðu ekki alveg að gera sitt besta fyrir framan markið.
Bestu leikmenn
1. Atli Sigurjónsson (KR)
Atli var öflugur í dag, hann á stoðsendinguna í marki númer 2 og átti líka stóran þátt í fyrsta markinu.
2. Theodór Elmar Bjarnason (KR)
Elmar var allt í öllu hjá KR áður en hann fór útaf. Hann átti nokkur hættuleg skot og skilaði líka góðri varnarvinnu.
Atvikið
Fyrsta mark KR var frekar skrítið en Ægir Jarl gerir gríðarlega vel þar sem honum tekst á einhvern hátt að pota boltanum upp í loftið þannig að hann nær skallanum yfir Jajalo í markinu.
Hvað þýða úrslitin?
KR færir sig upp í 7. sætið með 15 stig á meðan KA er enn í 5. sæti með 17 stig og núna 4 stigum á eftir FH.
Vondur dagur
Enginn leikmaður átti eitthvað sérstaklega slæman leik að mínu mati en vallarstarfsmenn KR-inga áttu vondan dag þar sem þeir þurftu að fylgja eftir asnalegri reglu á KR vellinum þar sem það er bannað að vera með trommur. Ungir KA stuðningsmenn höfðu tekið með sér trommur og héldu upp mjög góðri stemningu á vellinum en þurftu svo að skipta trommunum út fyrir auglýsinga skiltin eftir að þeim var bannað að nota þær.
Dómarinn - 8
Lítið hægt að setja út á Helga Mikael og hans teymi í dag. Hann reyndi hvað hann gat að halda spjöldunum í vasanum í leiknum sem skapaði aðeins meiri hörku í leiknum sem var skemmtilegt.




