SKÝRSLAN: Bæði lið ósátt eftir jafntefli
Hvað réði úrslitum?
Afturelding var betra liðið á vellinum, en þegar það er flautað til leiksloka þá eru það alltaf mörkin sem telja. Leiknir nýttu sín fáu færi vel, á meðan Afturelding náði ekki gera eins mikið úr þeim mörgum færum sem þeir fengu.
Bestu leikmenn
1. Daníel Finns Matthíasson
Skoraði tvö mörk í leiknum og var mjög sprækur allan tímann. Frábær leikur hjá honum!
2. Elmar Kári Enesson Cogic
Potaði boltann inn fyrir fyrra mark Aftureldingu og átti mjög flottan leik í dag.
Atvikið
Eftir að Afturelding komst yfir í leiknum, náði Leiknir að jafna leikinn svo strax aftur aðeins mínútu seinna.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknir er ennþá í næst seinasta sæti með 5 stig. Afturelding heldur sína efsta sæti í deildinni með 20 stig.
Vondur dagur
Það var lítið af lélegum frammistöðum í þessum leik. Mér fannst Sowe ekki vera neitt sérstakur á boltanum í leiknum, hann átti alveg fyrsta markið hjá Leikni, en gerði lítið eftir það. Svo gerir Rasmus stór mistök í seinna marki Leiknis þegar hann reynir að koma sér fyrir sendinguna sem endaði á Daníel og varð svo að marki.
Dómarinn - 7
Fínt dæmdur leikur hjá Twana Ahmed og hans teymi. Ekki mikið af neinum erfiðum ákvörðunum teknar í þessum leik, en sá varla neitt sem var illa dæmt



