SKÝRSLAN: Enn bíður Keflavík eftir sigri
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var lítið fyrir augað heilt yfir enda buðu aðstæður vart upp á annað. Bæði lið með þéttar varnir og freistuðu þess að sækja hratt upp völlnn. Fylkir eins stundum áður nýtti fast leikatriði og skoraði en Keflavík kom til baka með snyrtilegu marki eftir ágætt spil. En hvað réði því að leikurinn fór jafntefli? Í þetta sinn segi ég pass
Bestu leikmenn
1. Magnús Þór Magnússon
Barðist mikið og leiddi sitt lið áfram eins og sannur fyrirliði. Átti sénsa í teig Fylkis sem hann hefði getað gert betur í en heilt yfir góður leikur hjá fyrirliðanum
2. Pétur Bjarnason
Skoraði gott mark eftir horn og gerði sitt ítrasta í sóknarleiknum að halda boltanum uppi og koma fleiri mönnum upp völlinn þannig.
Atvikið
Hálf sérstakt að leikurinn bauð ekki upp á mörg eftirminnileg augnablik. En þar sem AD1 dæmdi mark Fylkismanna eftir að Mathias í marki Keflavíkur hafði varið skalla Péturs inn í markinu veljum við það.
Hvað þýða úrslitin?
Stiigið fleytir Fylki úr 10.sæti upp í það 7. þar sem að liðið situr með 12 stig. Keflavík enn á botninum með 8 stig.
Vondur dagur
Axel vallarþulur Keflavíkur var í basli með vallarklukkuna og skortöfluna. Til að byrja með skellti hann marki Fylkis á Keflavík og þá byrjaði ballið. Taflan lét öllum illum látum og neitaði að leyfa honum að leiðrétta það sem tókst þó á endanum. Í ofanálag neitaði klukkan að fara í gang í síðari hálfleik og þá var Axel ekki skemmt. Eftir um það bil 20 mínútur af síðari hálfleik hafði Axel þó náð að laga klukkuna og stillt hana rétt. Erfiður dagur á skrifstofunni en hann stóð sína vakt af festu og gerði það besta úr stöðunni.
Dómarinn - 8
Ekkert spjald fór á loft í leiknum í dag og varð ég hreinlega lítið var við Ívar á vellinum. Lítið var um mótmæli yfir dómum hjá báðum liðum svo hann hlýtur að hafa verið að gera eitthvað rétt.



