SKÝRSLAN: ÍA komnir með fjóra sigurleiki í röð
Hvað réði úrslitum?
ÍA voru betri í 75 mínútur í kvöld. Fyrri hálfleikurinn var í eign Skagamanna en liðið fékk nokkur dauðafæri til að skora. Skagamenn fóru með 1-0 forskot inn í hálfleikinn. Þórsarar komu sterkir inn í síðari hálfleikinn og voru betri þangað til ÍA skoraði annað markið og eftir það var þetta aldrei spurning hvorumegin sigurinn myndi detta.
Bestu leikmenn
1. Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Gísli Laxdal var maður leiksins í dag og fóru Skagamenn mikið upp hans megin. Skoraði svo annað markið sem kláraði leikinn
2. Steinar Þorsteinsson (ÍA)
Steinar var mjög góður í kvöld og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Var mikið í boltanum og kom sér oft í góðar stöður ásamt því að koma liðsfélögum sínum í góðar stöður.
Atvikið
Atviki leiksins var undir lokin þegar Daníel Ingi Jóhannesson var skipt inn á á 90.mínútu fyrir Arnór Smárason og tók strákurinn við fyrirliðabandinu í sínum síðasta leik fyrir Skagan en hann er á leið í atvinnumennsku. Skoraði fjórða mark ÍA með sinni fyrstu snertingu eftir frábæran undirbúning frá Inga Þór
Hvað þýða úrslitin?
Eftir fjóra sigurleiki í röð eru Skagamenn komnir upp í þriðja sæti og er liðið með 17,stig, stigi á eftir Fjölni sem situr í því öðru. Þórsarar eru áfram um miðja deild og er liðið með 13.stig.
Vondur dagur
Það átti enginn vondan dag í dag en Alexander Már Þorláksson sást ílla í kvöld eins og Marc Rochester Sörensen. Elmar Þór var einnig í smá brasi í vinstri bakverðinum í fyrri hálfleik en liðið leitaði mikið upp þar sérstalega í fyrri hálfleik með hraðan í Gísla Laxdal og sköpuðust oft miklar hættur þegar ÍA leitaði upp þar.
Dómarinn - 7.5
Gunnar Freyr og hans menn voru mjög solid í kvöld.



