Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Skýjað og væg rigning, alvöru sumarveður
Afturelding
Afturelding
4 - 3
Fjölnir
Fjölnir
Ásgeir Marteinsson 4'1 - 01 - 16' Júlíus Mar JúlíussonArnór Gauti Ragnarsson 20'2 - 1Elmar Kári Enesson Cogic 39'3 - 1Elmar Kári Enesson Cogic 41'4 - 14 - 282' Máni Austmann Hilmarsson (víti)4 - 387' Bjarni Þór Hafstein
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Raggi Óla

SKÝRSLAN: Markaregn í toppslag Lengjudeildarinnar

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var nokkuð jafn í stöðunni 2-1, Afturelding hélt aðeins meira í boltann en 2 mörk frá Elmari Kára Cogic undir lok fyrri hálfleiks gerði út um leikinn.

Bestu leikmenn

1. Elmar Kári Cogic

Elmar Kári átti frábæran dag skoraði tvö mörk, annað þeirra algjört draumamark og hefði getað skorað fleiri. Alltaf hættulegur þegar hann fékk boltann.

2. Bjarni Þór Hafstein

Bjarni Þór kom inná og kveikti í leiknum fyrir Fjölnismenn. Hann sótti víti og skoraði frábært mark.

Atvikið

Fyrra mark Elmars Kára var í heimsklassa, hann kom sér á vinstri fótinn fyrir utan teig og hamraði síðan boltanum í slánna og inn.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Afturelding er ennþá í toppsæti deildarinnar nú með 5 stiga forystu. Fjölnismenn eru enn í 2. sæti með 18 stig en ÍA er aðeins einu stigi frá þeim í 3. sæti.

Vondur dagur

Axel Freyr Harðarson klúðraði tveimur frábærum færum annarsvegar í stöðunni 1-1 og hinsvegar í stöðunni 4-3. Dýr klúður hjá Axeli þarna.

Dómarinn - 7

Helgi Mikael heilt yfir flottur í dag, en ég er sammála Úlfi sem kom inn á það í viðtali eftir leik að uppbótartíminn var of stuttur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.