Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
Besta-deild karla
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
1 - 0
Fram
Fram
Alex Freyr Hilmarsson 3'1 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Afar mikilvægur sigur ÍBV á Goslokahátíð

Hvað réði úrslitum?

Í raun bara mark leiksins í byrjun leiks. Eftir það bara fram og til baka og hefði svo sem bara getað endað hvernig sem er en verðskuldaður sigur ÍBV samt sem áður.

Bestu leikmenn

1. Alex Freyr Hilmarsson

Gerir gott mark í byrjun leiks og er svo eins og oft áður akkeri liðs ÍBV

2. Ólafur Íshólm Ólafsson

Stóð sig vel í marki Fram. Kom í veg fyrir stærra tap Framara.

Atvikið

Verður að vera markið bara og eðlilega. Gott mark úr föstu leikatriði sem tryggði 3 dýrmæt stig.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV klifrar upp töfluna og er komið upp í 8. sæti eftir tvo sigurleiki í röð. Fram nálgast Fylki og Keflavík sem eru í botnsætunum tveimur.

Vondur dagur

Maður sá varla Guðmund Magnússon í dag, eins oft og maður sér hann skunda um. Fór sem sagt lítið fyrir honum í dag og það munar um minna.

Dómarinn - 8

Man bara ekki eftir einhverju veseni hjá Pétri í dag. Gaf tvö gul spjöld fyrir dýfur sem að voru háréttar ákvarðanir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.