Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Besta-deild karla
HS Orku völlurinn
Frábærar alvöru bongó bliða og völlurinn flottur.
Keflavík
Keflavík
3 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
Magnús Þór Magnússon (f) 5'1 - 01 - 17' Nikolaj Andreas Hansen (víti)1 - 211' Danijel Dejan DjuricMagnús Þór Magnússon (f) 13'2 - 2Frans Elvarsson 51'3 - 23 - 395' Nikolaj Andreas Hansen
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Keflavík enn taplaust á eiginlegum heimavelli

Hvað réði úrslitum?

Voru Víkingar um of með hugann við evrópuleik sinn sem framundan er og bitnaði það á frammistöðu þeirra? Eflaust hafði það sitt að segja en hvað sem því líður spilaði Keflavík sinn besta leik sóknarlega þetta sumarið og átti ekkert minna en jafnteflið skilið.

Bestu leikmenn

1. Sami Kame

Tvær stoðsendingar og algjör prímusmótor í sóknarleik Keflavíkur. Til að slá varnagla er samt áhyggjuefni hversu háðir honum þeir eru sóknarlega.

2. Oleksii Kovtun

Mikið vafamál fyrir mig hvern ég ætti að tilnefna. Kovtun átti fínasta leik og tókst að stórum hluta að vængstífa kantspil Víkinga.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins, Magnús Þór fyrirliði Keflvíkinga skallar hornspyrnu Sami Kamel í netið og gefur tóninn fyrir það sem koma skal. Má líka nefna það hér að Keflavík hefur enn ekki tapað á HS Orkuvellinum þetta sumarið. Vissulega ekki unnið heldur en ég held að flestir nái því sem ég er að segja.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar enn á toppnum með níu stig forskot á Val sem þó á tvo leiki til góða. Keflavík áfram á botninum með níu stig, þremur stigum á eftir Fylki.

Vondur dagur

Helgi Guðjónsson, situr á bekknum þegar Víkingar þurfa mörk en fær ekki kallið. Skorað mörg mikilvæg mörk fyrir þá í gegnum tíðina. Ég viðurkenni það að ég varð hálf pirraður að sjá hann ekki fá kallið en efast ekki um að Arnar hafi sínar ástæður fyrir þessari ákvörðun sinni.

Dómarinn - 5

Ég þarf kannski bara að hætta að skrifa um leiki sem Helgi Mikael dæmir eða mögulega setjast með honum yfir kaffibolla og ræða hans sýn á leikinn. Ég næ því sem næst aldrei þeirri línu sem hann velur sér í leikjum sem hann dæmir og ég hugsa að bæði lið séu ósátt með fjölmargar af hans ákvörðunum í dag. Ef hann hefur áhuga á má hann endilega hafa samband og ræða við mig yfir rjúkandi bolla um dómgæslu. Það skal tekið fram þó að ég ber gríðarlega virðingu fyrir því starfi sem dómarar vinna en því fylgir engin kvöð um að ég þurfi að vera sammála þeirra ákvörðunum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.