Fotbolti.net
Besta deildin
Ingi Snær Karlsson
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
Sól og blíða í Garðabænum
Stjarnan
Stjarnan
0 - 2
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 114' Katla Tryggvadóttir0 - 272' Sierra Marie Lelii
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Þróttur vann Stjörnunna í hörkuleik

Hvað réði úrslitum?

Fyrsta mark Þróttar var frábært einstaklingsframtak hjá Kötlu Tryggvadóttur. Leikurinn var jafn framan af en Þróttarar nýttu stöður sínar betur og uppskáru stigin þrjú.

Bestu leikmenn

1. Katla Tryggvadóttir

Gríðarlega efnileg og var með frábært mark í dag þar sem hún fór illa með Gunnhildi Yrsu. Er mjög beinskeytt og kraftmikil og hikar ekki að keyra á vörninna.

2. María Eva Eyjólfsdóttir

Steig varla feilspor í leiknum og fátt sem komst framhjá henni í dag. Bakverðir fá oft ekki eins mikla athygli en María Eva á það skilið eftir frammistöðuna í dag.

Atvikið

Á 47. mínútu átti varamaðurinn Snædís María skot í slá. Ef það skot hefði farið inn hefði það breytt leiknum mikið og staðan kannksi verið önnur.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur tyllir sér upp í 3. sæti á kostnað Þórs/KA en þær eiga inni einn leik. Stjarnan situr enn í 6. sæti eftir tapið og þær hljóta að ætla sér hærra.

Vondur dagur

Erfitt að velja eftir jafnan leik enn Málfríður Erna hefur átt betri leiki í vörninni hjá Stjörnunni. Reynsluboltinn fékk tvö mörk á sig og var með nokkrar misheppnaðar sendingar úr vörninni.

Dómarinn - 8

Heilt yfir átti Guðmundur Páll fínan leik. Ég tók varla eftir honum sem hlýtur að vera jákvætt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.