Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Austurríki U20
Austurríki U20
Vináttulandsleikur kvenna
Wiener Neustadt Arena
25 gráðu hiti og völlurinn lítur gríðarvel út.
0 - 1
Ísland
Ísland
0 - 189' Hafrún Rakel Halldórsdóttir
Dómari: María Martínez (Spánn)
Leik lokið!
Góður sigur Íslands í baráttuleik. Margt sem gekk betur en gegn Finnum á dögunum en annað sem má bæta fyrir komandi undankeppni. Við þökkum samfylgdina í kvöld.
93. mín
Mínúta eftir og fátt sem bendir til þess að sigurinn sé ekki á leið til Íslands
92. mín
Amanda í skotfæri eftir snarpa sókn en setur boltann framhjá markinu.
90. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti fjórar mínútur.
Ísland
89. mín
Frábær sókn skilar marki!

Hafrún Rakel Halldórsdóttir

Sækjum hratt upp vinstri vænginn. Arna finnur Berglindi Rós sem keyrir í átt að teignum og leggur boltann á Hlín. Hlín nær snúningnum í teignum og lætur vaða á markið. Zinsberger ver en boltinn hrekkur af Hafrúnu sem var mætt í frákastið og lekur í netið. Alls ekki fallegasta mark sem ég hef séð en þau telja öll jafnt.
Ísland
87. mín
InnArna Eiríksdóttir
ÚtElísa Viðarsdóttir
Systur að spila saman landsleik. Gaman að því. Koma sér í hóp með mætum konum eins og Ásthildi og Þóru Helgadóttur og Margréti Láru og Elísu Viðarsdætrum.
86. mín
Hafrún í fínni stöðu úti til hægri eftir skyndisókn Íslands. Velur að setja boltann strax fyrir sem heimakonur ráða auðveldlega við. Hafði meiri tíma og hefði getað beðið eftir liðsfélögum inn á teiginn.
83. mín
Talsvert dregið af íslenska liðinu. Lítið tekist að halda í boltann síðustu mínútur og pressa heimakvenna að þyngjast.
78. mín
Heimakonur fá aukaspyrnu á prýðisstað til fyrirgjafar. Cecilía með þetta allt á hreinu og grípur fyrirgjöfina
Austurríki U20
76. mín
InnLaura Wienroither
ÚtMarina Georgieva
75. mín
Korter eftir af venjulegum leiktíma hér. Kalla eftir smá krafti í sóknarleikinn þetta síðasta korter.
71. mín
Vatnspása taka tvö. Næ mér sjálfur í kaffibolla á meðan.
Ísland
70. mín
InnAmanda Andradóttir
ÚtSveindís Jane Jónsdóttir
Sveindís hlaupið mikið og fengið ágætis sénsa í dag en tókst ekki að finna netið.
Austurríki U20
70. mín
InnNicole Billa
ÚtMarie-Therese Höbinger
65. mín
Stál í stál er hægt að nota til að lýsa þessum leik síðustu mínútur. En laglegir taktar inn á milli.
Ísland
60. mín
InnHafrún Rakel Halldórsdóttir
ÚtDiljá Ýr Zomers
Ísland
59. mín
Gult spjald

Elísa Viðarsdóttir

Brot á miðjum vellinum
58. mín
Stórhætta við mark Austurríkis.
Komumst upp völlinn hægra megin. Sveindís finnur Diljá í teignum sem reynir að setja boltann í hornið fjær en boltinn rúllar rétt framhjá stönginni.
58. mín
Cecilía ver á ný. Laura Feiersinger með skotið
54. mín
Marie-Therese Höbinger með skot sem Cecilía slær yfir slánna. Heimakonur fá horn.
48. mín
Sveindís Jane!
Sleppur ein í gegn en missir boltann aðeins frá sér, nær honum þó og reynir að vippa boltanum yfir Zinsberger í markinu. Nær því en boltinn hárfínt framhjá stönginni.
Ísland
46. mín
InnBerglind Rós Ágústsdóttir
ÚtHildur Antonsdóttir
Ísland
46. mín
InnGunnhildur Yrsa Jónsdóttir
ÚtKarólína Lea Vilhjálmsdóttir
46. mín
Ísland gerði fleiri breytingar í hálfleik og er Gunnhildur Yrsa til að mynda á vellinum. Austurrísku sjónvarpsmennirnir eru lítið að stressa sig á því að færa það til bókar en ég reyni að átta mig á hverjar viku af vellinum.
46. mín
Sveindís Jane í fínni stöðu í teignum eftir sprett en nær ekki að finna samherja í teignum.
Ísland
46. mín
InnHlín Eiríksdóttir
ÚtAlexandra Jóhannsdóttir
Austurríki U20
46. mín
InnEileen Campbell
ÚtViktoria Pinther
Austurríki gerði breytingu í hálfleik.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Íslenska liðið hefur leik í þessum síðari hálfleik.
45. mín
Jöfnum fyrri hálfleik lokið. Hvorugt lið getur sagst hafa haldið stjórn á leiknum í þessum fyrri hálfleik sem hefur verið helst til lokaður. Vonumst eftir ögn meiri krafti í sóknarleik Íslands í síðari hálfleik því tækifærin eru svo sannarlega til staðar.
45. mín
Cecilía með alvöru vörslu! Barbara Dunst með hörkuskot af löngu færi en Cecilía með þetta allt í teskeið og skutlar sér á boltann og ver.
45. mín
+2 Heimakonur lítið skapað af færum í teig Íslands það sem af er. Þeirra helsta ógn hefur verið með skotum utan af velli. Varnarleikurinn verið góður heilt yfir hjá stelpunum líkt og ráða má útfrá þvú
45. mín
Uppbótartími er að minnsta kosti fjórar mínútur. Vatnspása á þar drjúgan skerf.
45. mín
Karólína Lea velur að skjóta úr aukaspyrnunni en setur boltann víðsfjarri markinu.
Austurríki U20
44. mín
Gult spjald

Virginia Kirchberger

Lendir í kapphlaupi við Sveindísi og rífur hana niður. Þurfti þó nokkrar tilraunir til en það tókst á endanum. Klárt gult.
40. mín
Selma Sól með skot eftir fína sókn Íslands. Boltinn af varnarmanni og í horn. Dapurt horn siglir yfir teiginn og í innkast.
40. mín
Íslenska liðið heldur fallið aftur á völlinn og verið í vandræðum með uppspilið síðustu mínútur. Smá ró á boltann á ný og ná tökum á leiknum á ný.
36. mín
Marie-Therese Höbinger með skot í stöng!
Frábært skot af 25-30 metrum eftir smá pressu Austuríkis. Boltinn flýgur í átt að marki og virðist stefna í netið en sem betur fer smellur hann í stönginni. Heppnin með okkur þarna.
34. mín
Mjög mikið um næstum því hjá báðum liðum.
Bæði lið verið að skapa sér þokkalegar stöður en verið að klikka á þessari margfrægu lokasendingu til að skapa sér afgerandi færi.
32. mín
Síðustu mínútur verið rólegar, leikurinn í járnum svo að segja.
25. mín
Vatnspása
Spænski dómarann flautar hér og stöðvar leikinn svo leikmenn geti fengið sér vatn. Þjálfarar beggja liða nýta tækifærið og fara yfir málin. Þessar fyrstu 25 hafa verið ágætar hjá Íslenska liðinu en mikill vill meira segir máltækið og ég held að stelpurnar eigi 1-2 gíra inni.
21. mín
Viktoria Pinther með skot úr D-boganum sem að Cecilía kastar sér á og heldur. Heimakonur heldur að vinna á.
20. mín
Varamaðurinn Schasching með hættulegan bolta fyrir markið frá hægri. Sem betur fer engin rauð treyja mætt á endan á henni. Heimakonur halda pressunni og enda sóknina með skoti sem fer þó vel yfir.
18. mín
Austurríki í miklum vandræðum með vinstri væng íslenska liðsins og fer meirihluta sókna okkar upp þar.
Austurríki U20
16. mín
InnAnnabel Schasching
ÚtClaudia Wenger
Wenger þarf að víkja vegna meiðsla. Sveindís mætt aftur inná.
13. mín
Sveindís fær sér sæti í grasinu eftir laglega sókn íslenska liðsins. Kallar eftir aðstoð af bekknum. Sýndist þetta hafa verið hné í hné og vona að svo sé.
9. mín
Karólína í hörkufæri
Langur bolti upp í hornið á Sveindísi sem keyrir inn á teiginn, leggur boltann á Karólínu sem mætir í hlaupið en Zinsberger snögg niður og ver í horn.
8. mín
Sarah Puntigam í skotfæri eftir að Ísland tapar boltanum á hættulegum stað. Vel yfir þó
5. mín
Selma Sól með hörkuskot
Kraftur í stelpunum í byrjun. Sveindís leggur boltann á Selmu sem lætur vaða af 20 metrum. Zinsberger í marki Austurríkis vel staðsett og ver en nær ekki að halda boltanum. Varnarmenn þó fyrstir a boltann og hreinsa.
3. mín
Myndtruflanir að gera okkur lífið leitt hér í upphafi. Vonum að vinir okkar hjá Sjónvarpi Símans kippi því í liðinn með kollegum sínum frá Austurríki.
2. mín
Sveindís Jane vinnur aukaspyrnu í ágætri fyrirgjafarstöðu.
1. mín
Þetta er farið af stað. Það eru heimakonur sem hefja hér leik. Áfram Ísland!
Fyrir leik
Styttist í leik
Styttist óðum í að leikurinn hefjist á Wiener Neustadt Arena. Ég vonast eftir því að stelpurnar nái upp betri leik sóknarlega í dag en gegn Finnum á dögunum og sýni okkur hvað í þær er spunnið þar. Þetta Austuríska lið er samt hörkuandstæðingur og hafa verið að ná fínum árangri á undanförnum árum þó þær hafi misst af sæti á HM í þetta sinn.
Fyrir leik
Byrjunarlið Austurríkis
Fyrir leik
Fjórar breytingar
Þorsteinn Halldórsson gerir fjórar breytingar frá leiknum gegn Finnlandi á föstudag. Cecilía Rán Rúnarsdóttir ver mark liðsins, Arna Sif Ásgrímsdóttir kemur inn í vörnina, Hildur Antonsdóttir byrjar á miðsvæðinu og Diljá Ýr Zomers kemur inn í fremstu línu. Agla María Albertsdóttir, Telma Ívarsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir setjast á bekkinn.
Fyrir leik
Byrjunarlið Íslands
Fyrir leik
Við bíðum eftir því að byrjunarliðið verði opinberað...
KSÍ lætur eitthvað bíða eftir sér í því.
Fyrir leik
Liðin hafa aðeins mæst einu sinni
Eina viðureign þessara liða var í lokaumferð riðlakeppninnar á EM 2017 þar sem Austurríki vann 3-0 sigur.
Fyrir leik
Leikið er á Wiener Neustadt Arena
Fyrir leik
Elísa: Ætlum fyrst og fremst að þétta raðirnar
Fyrir leik
Þorsteinn Halldórsson: Þurfum að vera tilbúin í alvöru læti
Fyrir leik
Fyrsta landsliðsmarkið og fyrsta skallamarkið
Berglind Rós Ágústsdóttir skoraði á föstudag sitt fyrsta landsliðsmark á ferlinum. Markið skoraði hún með skalla eftir aukaspyrnu Karólínar Leu Vilhjálmsdóttur. Markið kom á 68. mínútu og minnkaði Ísland muninn í 1-2 með markinu. Það urðu svo lokatölur leiksins en landsliðið undirbýr sig núna fyrir vináttulandsleik gegn Austurríki sem fram fer ytra á morgun. Ásamt því að vera fyrsta landsliðsmark Berglindar var það hennar fyrsta skallamark á ferlinum. Berglind var til viðtals eftir leikinn og hún var spurð út í markið. „Ég er ánægð með markið. Ég hlakka til að sjá það aftur, mig langaði rosalega að (skora), mér fannst eins og ég þyrfti að bæta upp fyrir annað markið. Þetta er fyrsta skallamarkið á ferlinum, mjög gaman. Geggjuð aukaspyrna frá Karólínu, bara beint á kollinn á mig og ég þurfti ekki voða mikið að gera. Geggjað að fá þannig spyrnur þar sem maður þarf bara að snerta boltann," sagði Berglind um markið.
Fyrir leik
Sjáðu fyrsta mark Berglindar
Fyrir leik
Leikurinn er sýndur í beinni í Sjónvarpi Símans - Í opinni dagskrá
Kvennalandsliðið mætir Austurríki í vináttulandsleik kl. 17:45 á Wiener Neustadt ERGO Arena í Austurríki. Er þetta annar vináttuleikur liðsins á stuttum tíma. Ísland tapaði 2-1 fyrir Finnlandi á Laugardalsvelli á föstudag sem Berglind Rós Ágústsdóttir skoraði mark Íslands. Ísland - Austurríki verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sjónvarpi Símans.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.