Leik lokið!
Spánverjar miklu betri og vinna verðskuldaðan sigur. Okkar stelpur verða að þjappa sér saman því næst er það mikilvægur leikur gegn Tékklandi. Stelpurnar þurfa helst sigur þar til að eiga möguleika á að fara áfram.
Áfram gakk!
90. mín
Fimm mínútum bætt við
Enn syngja íslensku stuðningsmennirnir.
89. mín
Íslenska liðið svo sannarlega að mæta ofjörlum sínum í dag.
88. mín
Þriðja markið
Carla Camacho (stoðsending: Lucía Corrales)
Spánverjar vinna baráttuna á miðjunni. Corrales er spiluð á bak við og hún kemur boltanum fyrir á Camacho sem skorar. Þetta mark er í raun búið að liggja í loftinu allan seinni hálfleikinn.85. mín
InnSandra Villafañe
ÚtSara Ortega
84. mín
InnSigríður Theódóra Guðmundsdóttir
ÚtÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
Síðasta breyting Íslands.
82. mín
Þetta hefur verið rólegt síðustu mínútur. Þær spænsku halda boltanum og virðast sáttar með að vinna 2-0.
79. mín
InnBergdís Sveinsdóttir
ÚtKatla Tryggvadóttir
Núna eru tveir leikmenn Víkings inn á vellinum en Sigdís Eva spilar einnig fyrir topplið Lengjudeildarinnar. Flott starf sem er verið að vinna í Fossvoginum.
75. mín
InnOlaya
ÚtFiamma
75. mín
InnCarla Camacho
ÚtWifi
74. mín
Íslenska stuðningsfólkið heldur áfram að styðja þétt við bakið á liðinu.
73. mín
Sædís með stórhættulega hornspyrnu á fjærstöngina og það má ekki miklu muna að Freyja Karín komist í boltann.
72. mín
Sigdís Eva að koma sterk inn. Hún vinnur hér hornspyrnu.
70. mín
Ísabella Sara og Sigdís Eva eru báðar fæddar árið 2006.
69. mín
InnÍsabella Sara Tryggvadóttir
ÚtVigdís Lilja Kristjánsdóttir
69. mín
InnSigdís Eva Bárðardóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
69. mín
InnFreyja Karín Þorvarðardóttir
ÚtEmelía Óskarsdóttir
68. mín
Jakobína að bjarga marki!
Lucía Corrales með hættulega fyrirgjöf en Jakobína nær að bjarga. Þær biðu þrjár á fjærstönginni og þetta hefði 110 prósent endað með marki ef Jakobína hefði ekki verið svona vel vakandi.
68. mín
Ísland fær góðan stuðning
68. mín
Þreföld skipting á leiðinni hjá Íslandi.
66. mín
Hættulegt!
Martina í mjög góðu færi inn á teignum en hún hittir einfaldlega ekki boltann þegar hún reynir að skalla hann að marki.
65. mín
Gult spjald
Sædís Rún Heiðarsdóttir (f)
65. mín
Spurning hvort það væri ekki sniðugt að hreyfa aðeins við liðinu, fríska upp á þetta.
61. mín
InnLaia Martret
ÚtÉrika
61. mín
InnLucía Corrales
ÚtJone Amezaga
60. mín
Afar slök spyrna
Írena tekur spyrnuna en hún fer lengst yfir markið.
60. mín
Þetta er skotfæri, þessi aukaspyrna.
59. mín
Gult spjald
Margrét Magnúsdóttir
Þórður Þórðarson, aðstoðarþjálfari Íslands, fær gula spjaldið fyrir tuð.58. mín
Rautt spjald?
Sara Ortega
Emelía að komast í mjög góða stöðu þegar Ortega brýtur á henni. Cvetkovic var mjög lengi að flauta en gerir það á endanum. Ortega mögulega heppinn að sleppa með rautt spjald.57. mín
Hin serbneska Cvetkovic hefur ekki heillað mig með frammistöðu sinni. Íslenska liðið að vinna boltann hátt á vellinum en þá gefur hún Spáni ódýra aukaspyrnu.
55. mín
Við náum ekki að skapa okkur færi út úr hornspyrnunni.
54. mín
Emelía með fínan sprett upp völlinn. Hún er komin inn á teiginn og sækir hornspyrnu. Það besta frá íslenska liðinu í langan tíma.


51. mín
Það er ansi líklegt að spænska liðið skori mark númer þrjú fljótlega, þær pressa og pressa.
48. mín
Spánverjar byrja seinni hálfleikinn af miklum krafti. Íslenska liðið er mjög aftarlega á sínum eigin vallarhelmingi.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
45. mín
Það er kominn hálfleikur. Ísland átti flottan kafla fyrstu tíu mínúturnar en svo tók Spánn algjörlega yfir. Tveggja marka forystan er verðskuldað.
45. mín
Zubieta reynir skot af rúmum 30 metrum. Lengst yfir markið.
45. mín
Tveimur mínútum bætt við fyrri hálfleik
40. mín
Wifi komin ein í gegn en setur boltann framhjá markinu. Ekki nægilega vel tengd í færinu þarna.
39. mín
Staðan orðin mjög erfið fyrir íslenska liðið. Varnarleikurinn verið dapur í þessum leik, því miður.
37. mín

Myndir frá leiknum í Belgíu:

36. mín
Þær spænsku bæta við öðru marki
Fiamma (stoðsending: Maite Zubieta)
Zubieta nær að þræða Fiamma í gegn, hún fær boltann einhvern veginn í sig og er svo sloppin ein í gegn. Skotið var óverjandi fyrir Fanneyju.31. mín
Katla reynir fyrirgjöf en þær spænsku komast fyrir og snúa vörn í sókn.
30. mín
Það er búið að vera alltof auðvelt fyrir spænska liðið að komast í gegnum íslensku vörnina.
29. mín
Aftur Fanney
Fanney að halda íslenska liðinu í leiknum þessa stundina. Jone Amezaga labbar í gegnum vörnina og er komin í mjög fínt færi, en Fanney ver mjög vel.
28. mín
FANNEY!!!
Bartel með stórkostlega sendingu inn fyrir vörn íslenska liðsins og Spánn fær tvö dauðafæri, en í bæði skiptin ver Fanney Inga mjög vel!
Alltof auðvelt fyrir Spán að komast í dauðafæri, ein sending í gegnum vörnina.


24. mín
Jelena Cvetkovic dæmir hér brot á Vígdísi Lilju. Vægast sagt furðulegur dómur... þar sem Vigdís gerði nákvæmlega ekkert af sér þarna, það var brotið á henni.
Vigdís Lilja hefur byrjað þennan leik vel.


21. mín
Spænska liðið við það að komast í mjög gott færi en okkar stelpur skila sér vel og ná á endanum að loka.
17. mín
Spánverjar eru ríkjandi meistari og hafa unnið þessa keppni fjórum sinnum. Ísland er að mæta gríðarlega sterku liði hér í dag, það er á hreinu.
14. mín
Þær spænsku eru að hóta öðru marki.
13. mín
Ágætis spil hjá spænska liðina. Boltinn berst út til vinstri og svo kemur fyrirgjöf sem Fiamma skallar yfir markið.
12. mín
Við fáum víkingaklapp í stúkunni.
11. mín
Spánverjar taka forystuna
Érika
Fiamma fær tíma til að athafna sig fyrir utan teig og hún nær skoti sem Fanney ver, en hún missir boltann frá sér og þá kemur Erika á ferðinni, nær boltanum og skorar. Fanney svekkt út í sjálfa sig, skiljanlega. Varnarleikurinn ekki upp á marga fiska.8. mín
Íslenska liðið er óhrætt í byrjun leiks og hefur náð að skapa sér flottar stöður.
7. mín
Hættulegur bolti inn á teiginn en Emelía nær ekki að taka á móti honum. Ef hún hefði náð valdi á þessum bolta þá hefði hún verið komin í dauðafæri.
5. mín
Sædís með ágætis spyrnu en Spánverjar ná að koma boltanum frá.
4. mín
Katla!
Katla kemst í ágætis skotfæri fyrir utan teig og lætur vaða. Boltinn stefnir í netið en Font nær að blaka boltanum yfir. Þarna mátti ekki miklu muna!
Ísland fær hornspyrnu.


3. mín
Sædís bjargar stórkostlega!
Spánverjar í algjöru dauðafæri. Bartel gat í raun ekki fengið betra skotfæri á teignum og hún nær skotinu. Það er á leiðinni í hornið en Sædís Rún, fyrirliðinn, bjargar frábærlega!


1. mín
Þá er þetta farið af stað. Snædís María tekur upphafsspyrnu Íslands á þessu Evrópumóti!
Fyrir leik
Leikvöllurinn
Leikurinn í dag fer fram á Stade Leburton í Tubize í Belgíu. Þetta er völlur sem rúmar um 8 þúsund manns, mjög flottur leikvangur.
Fyrir leik
Þjóðsöngvarnir að baki. Íslenski þjóðsöngurinn einstaklega vel sunginn hjá stelpunum okkar og þeim fjölmörgum stuðningsmönnum sem mættir eru til Belgíu að styðja við bakið á liðinu. Stutt í að flautað verði til leiks.
Fyrir leik
Leið Íslands á lokamótið
Stelpurnar byrjuðu á því að vinna sig upp úr B-deild undankeppninnar þar sem þær voru í riðli með Færeyjum, Litháen og Liechtenstein. Íslenska liðið vann alla leiki sína og endaði með markatöluna 15:0.
Svo var það erfiðara verkefni í annarri umferð þar sem stelpurnar voru komnar upp í A-deild. Þá voru þær í riðli með Danmörku, Svíþjóð og Úkraínu. Íslenska liðið byrjaði á því að vinna bæði Danmörku og Svíþjóð en gerði svo jafntefli gegn Úkraínu í lokaleiknum. Það dugði til að komast á mótið.
Staðan í milliriðlinum:
1. Ísland - 7 stig
2. Danmörk - 6 stig
3. Svíþjóð - 3 stig
4. Úkraína - 1 stig


Fyrir leik
Sjö í byrjunarliðinu eru fæddar 2004, þrjár 2005 og Emelía Óskarsdóttir er fædd árið 2006. Emelía er því enn gjaldgeng í U17 landsliðið. Allar í byrjunarliðinu spila í Bestu deildinni.
Byrjunarlið Íslands
Sjö í byrjunarliðinu eru fæddar 2004, þrjár 2005 og Emelía Óskarsdóttir er fædd árið 2006. Emelía er því enn gjaldgeng í U17 landsliðið. Allar í byrjunarliðinu spila í Bestu deildinni.Fyrir leik
Verður erfitt verkefni
Stelpurnar eru í afar erfiðum riðli og fá mjög erfitt próf í fyrsta leik gegn Spáni. Það verður fróðlegt að sjá hvernig gengur í leiknum í kvöld en það yrði frábært ef stelpurnar myndu fá stig út úr þessum leik.
Fyrir leik
Verið velkomin
U19 landslið kvenna hefur í kvöld leik í lokakeppni Evrópumótsins. Liðið mætir Spáni en hægt verður að fylgjast með honum í textalýsingu hérna.





