Fotbolti.net
Besta deildin
@thorsteinnhaukuÞorsteinn Haukur Harðarson
Þorsteinn Haukur Harðarson
KR
KR
Besta-deild karla
Meistaravellir
1 - 0
FH
FH
Luke Morgan Conrad Rae 90'1 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Luke Rae tryggði KR dýrmætan sigur í lokin

Hvað réði úrslitum?

KR-ingar áttu hættulegri færi heilt yfir í dag og þeim tókst að skora úr einu slíku. FH-ingar geta nagað sig í handarbökin að klúðra víti skömmu áður

Bestu leikmenn

1. Simen Lillevik Kjellevold

Hrikalega flottur í dag. Kórónaði það að verða maður leiksins þegar hann varði víti og svo frákast af vítinu í stöðunni 0-0.

2. Luke Rae

Set þetta á Luke þó hann hafi bara spilað 10 mínútur. Kom inn af krafti og skoraði þetta dýrmæta sigurmark í lokin.

Atvikið

Annaðhvort þegar Simen varði víti eða þegar Luke Rae skoraði í lokin. Svo má líka minnast á utanvallar atvikið þegar Kjartan Henry, nú leikmaður FH, afþakkaði það að vera heiðraður af KR fyrir leik.

Hvað þýða úrslitin?

Liðin hafa sætaskipti í deildinni. KR í 4. sæti með 22 stig en FH sæti neðar með einu stigi minna. FH á þó leik til góða.

Vondur dagur

Það er magakveisa að ganga í KR liðinu sem fær pláss hér í vondum degi. Bæði Jóhannes Kristinn Bjarnason og Olav Öby verið veikir í dag og gátu ekkki verið með. KR-ingar brugðu á það ráð að rífa fram sprittbrúsana sem voru talsvert meira notaðir hérna fyrir ári eða svo. Rúnar talaði um smá hópsýkingu í viðtali eftir leikinn. Einhverjar sögur eru um að það hafi verið eftir mat sem liðið borðaði saman en það er ekkert staðfest í þeim efnum.

Dómarinn - 8,5

Sigurður Hjörtur var virkilega góður í dag og með stóru ákvarðanirnar alveg upp á 10.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.