Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Lengjudeild karla
Rafholtsvöllurinn
Njarðvík
Njarðvík
1 - 3
Grótta
Grótta
0 - 14' Aron Bjarki JósepssonRafael Alexandre Romao Victor 36'1 - 11 - 275' Grímur Ingi Jakobsson Hreggviður Hermannsson 76'1 - 381' Patrik Orri Pétursson
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson

SKÝRSLAN: Svekkjandi tap í frumraun Gunnars Heiðars með Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Grótta byrjaði sterk og komst snemma yfir en Njarðvíkingar snéru leiknum hægt og rólega sér í vil en það var svo stórbrotið mark frá Grími Inga sem kafsigldi Njarðvíkingum og hausinn fór þannig að Grótta gat siglt þessu heim.

Bestu leikmenn

1. Grímur Ingi Jakobsson

Var flottur í liði Gróttu og bara þetta mark eitt og sér á skilið MOTM. Hann skildi á milli þegar uppi var staðið.

2. Ibrahima Kalil Camara Diakite

Kom flottur inn á miðsvæðið hjá Njarðvík í þessum leik. Átti frábæra sendingu innfyrir á Kenneth Hogg sem hefði átt að verða stoðsending og lítur bara vel út.

Atvikið

Markið hjá Grími Inga frá einhverjum 35 metrum sem var truflað mark og drap niður alla trú hjá Njarðvík sem voru búnir að eiga hættuleg færi fram að þessu.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvík eru enn í fallsæti en Grótta eru í umspilssæti um að komast upp í Bestu.

Vondur dagur

Hreggi verður að taka þennan dálk á sig því miður. Enn eitt skiptið sem Njarðvíkingar fá rautt spjald í sumar og hljóta hreinlega að vera nálgast eitthvað met.

Dómarinn - 6

Alls ekki sammála endilega öllum ákvörðunum en heilt yfir var þetta bara nokkuð fagmannlegt. Rauða spjaldið er kannski vafa atriði í sjálfum sér en líklega rétt þegar farið er eftir stafnum í bókinni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.