Fotbolti.net
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeild karla
Extra völlurinn
Góðar tíu gráður og þægilegt
Fjölnir
Fjölnir
5 - 1
Ægir
Ægir
Bjarni Gunnarsson 11'1 - 0Orri Þórhallsson 16'2 - 0Óliver Dagur Thorlacius 53'3 - 0Máni Austmann Hilmarsson (víti) 59'4 - 04 - 162' Dimitrije CokicBjarni Þór Hafstein 77'5 - 1
Dómari: Stian Sletner

SKÝRSLAN: Mjög gott svar hjá Fjölni sem horfir í að gera hið ómögulega

Hvað réði úrslitum?

Fjölnismenn voru bara miklu betri í þessum leik. Þeir ná að skora tvö mörk snemma og í þetta skiptið halda þeir áfram, missa ekki taktinn og bæta við. Virkilega flottur leikur hjá Fjölnisliðinu. Þeir voru staðráðnir í að svara fyrir vonbrigðin gegn Þrótti í síðasta leik.

Bestu leikmenn

1. Dagur Ingi Axelsson (Fjölnir)

Stórkostlegur leikur hjá þessum skemmtilega kantmanni. Hann lagði upp þrjú mörk og vann eina vítaspyrnu. Væri að gera sterkt tilkall í leikmann umferðarinnar ef Elmar Kári Enesson Cogic hefði ekki skorað fimm mörk fyrir Aftureldingu.

2. Máni Austmann Hilmarsson (Fjölnir)

Máni var virkilega góður á miðsvæðinu, var mikið í boltanum og lét hann flæða vel. Skoraði úr vítaspyrnu og var öflugur fyrir sitt lið. Fleiri leikmenn úr Fjölnisliðinu gerðu sterkt tilkall í að vera í þessum dálki.

Atvikið

Ég ætla að segja að það hafi verið annað markið sem Fjölnir skorar. Afskaplega auðvelt mark og það gefur Fjölnismönnum gott forskot, kemur þeim í þægilega stöðu.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir er áfram í öðru sæti deildarinnar og horfir áfram í það að reyna að ná Aftureldingu, þó það verði erfitt - í raun svo gott sem ömögulegt. Ægir er á botninum en heldur áfram í vonina að halda sér uppi; þeir eru bara þremur stigum frá öruggu sæti.

Vondur dagur

Líklega versti leikur Ægis á tímabilinu, þeir voru gjörsigraðir í dag. Allir leikmenn liðsins nema Dimitrije Cokic áttu slæman dag. Þeir voru í vandræðum sérstaklega vinstra megin í vörninni. Sladjan Mijatovic meiddist illa og þeir áttu í erfiðleikum með að leysa það. Þá er þetta líklega versti leikur sem ég hef séð Stefan Dabetic spila.

Dómarinn - 9

Norðmaðurinn með flautuna stóð sig virkilega vel og var með góða stjórn á leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.