Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
EM U19 kvenna
Tivoli Stadium - La Louviere
Ísland U19
Ísland U19
2 - 0
Tékkland U19
Tékkland U19
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir 13'1 - 0Snædís María Jörundsdóttir 85'2 - 0
Dómari: Michele Schmölzer (Sviss)
Leik lokið!
Það var lagið stelpur!
Þrjú stig í hús og vonin um sæti í undanúrslitum er svo sannarlega á lífi. Frábær sigur gegn Tékkum í dag. Virkilega vel gert hjá stelpunum! Margar góðar frammistöður í leiknum.
95. mín
Íslenska liðið er að gera mjög vel að sigla þessum sigri heim!
Ísland U19
92. mín
InnÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
ÚtKatla Tryggvadóttir
91. mín
Fimm mínútum bætt við. Fanney ver skot frá Radka Hlouchova, skotið beint á Fanneyju.
90. mín
Mikaela kemur boltanum aftur fyrir eftir hornspyrnuna. Önnur hornspyrna. Sædís hreinsar svo næstu hornspyrnu í burtu.
90. mín
Tékkarnir fá horn, virkuðu hissa að fá þessa spyrnu. Metið að boltinn hafi farið af Bergdísi.
Tékkland U19
88. mín
Gult spjald

Klara Blahova

Braut á Kötlu á sprettinum. Mjög auðvelt að lyfta gula spjaldinu þarna.
87. mín
Aukaspyrna frá Tékkunum inn að íslenska markinu. Fanney grípur boltann mjög örugglega, aldrei hætta.
87. mín
Tvöfaldaði forskotið
Ísland U19
86. mín
InnÍsabella Sara Tryggvadóttir
ÚtVigdís Lilja Kristjánsdóttir
Ísland U19
86. mín
InnSigríður Theódóra Guðmundsdóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
Ísland U19
85. mín
JÁÁÁÁ!!

Snædís María Jörundsdóttir (stoðsending: Sædís Rún Heiðarsdóttir (f))

Flott aukaspyrna inn á teiginn frá Sædísi, boltinn skoppar rétt fyrir framan Snædísi sem hljóp á móti boltanum. Snædís tók boltann á lofti með vinstri fæti og stýrði boltanum þéttingsfast í hornið! Frábær afgreiðsla!
84. mín
Katla vinnur aukaspyrnu við vítateig Tékka. Zuzana Obadalova dæmd brotleg, þetta var ekki mikið brot...
83. mín
Bergdís gerir vel og kemur boltanum á Emelíu sem reynir að taka varnarmann á við vítateig Tékka en missir boltann. Bergdís er búin að eiga mjög góðan leik á miðsvæðinu.
Tékkland U19
82. mín
InnJulie Freislerova
ÚtDenisa Tenkratova
81. mín
Boltinn af Vigdísi Lilju og aftur fyrir. Tékkar fá horn. Boltinn fór inn að íslenska markinu og Fanney sló boltann í burtu. Dómarinn var búin að aðvara Tékkana og hún blés í flautuna þegar Fanney komst í boltann. Ísland á aukaspyrnu.
Ísland U19
80. mín
Gult spjald

Bergdís Sveinsdóttir

Brotleg við hliðarlínuna, missti Denisa Tenkratova fram fyrir sig.
78. mín
Skot sem Klara Duchackova á fyrir utan teig en boltinn fer í Sædísi og aftur fyrir. Tékkar fá horn en ekkert kemur upp úr því. Bergdís vinnur svo innkast.
Tékkland U19
76. mín
InnKlara Blahova
ÚtAlbina Goretkiova
76. mín
Katla lætur þá tékknesku ekki í friði og vinnur með því hornspyrnu. Vel gert! Hornspyrnan frá Sædísi fer ofan á þaknetið á marki Tékkanna.
Ísland U19
75. mín
InnEmelía Óskarsdóttir
ÚtSigdís Eva Bárðardóttir
Ísland U19
75. mín
InnBirna Kristín Björnsdóttir
ÚtEyrún Embla Hjartardóttir
74. mín
Sigdís með innkast inn á teiginn, reynir að finna Jakobínu sem skokkaði upp allan völlinn. Tékkar ná að skalla í burtu.
72. mín
Radka Hlouchova á skot en Sædís pressaði vel á hana og skotið, sem var fyrir utan teig, fer vel framhjá.
71. mín
Bergdís óheppin!
Hörkusókn hjá íslenska liðinu. Bergdís gerir mjög vel inn á teignum og á skot sem fer af varnarmanni og Vanesa Jilkova nær einhvern veginn að verja skotið með fætinum. Virkilega vel varið.
70. mín
Spánn mætir Frakklandi í seinni leik 2. umferðar í riðlinum. Bæði lið eru með þrjú stig eftir fyrstu umferðina. Sá leikur hefst klukkan 18:30.
69. mín
Írena Héðinsdóttir Gonzalez með geggjaða sendingu inn á Snædísi sem nær ekki að koma sér í skotið. Þetta var dauðafæri, en Snædís aðeins of lengi að athafna sig.
Tékkland U19
68. mín
Fyrsta gula spjaldið

Lucie Bendova

Brotið á Kötlu Tryggvadóttur. Það hlaut að koma að gulu spjaldi.
67. mín
Markaskorarinn
66. mín
Sædís Rún Heiðarsdóttir með fína spyrnu inn á tékkneska teiginn en boltinn er þó aðeins of langur fyrir Jakobínu og siglir aftur fyrir. Leit vel út þessi bolti.
65. mín
Snædís María Jörundsdóttir vinnur aukaspyrnu á vallarhelmingi Tékka. Albina Goretkiova fær tiltal frá dómaranum. Snædís svo í smá brasi að reima skóna sína.
63. mín
Vigdís Lilja vinnur hornspyrnu fyrir Ísland. Sædís tekur hornspyrnuna og Jakóbína rétt kemst í boltann en nær ekki að stýra honum að tékkneska markinu.
60. mín
Þversláin!
Þung sókn frá Tékkum. Fyrst er Eyrún Embla í brasi og Tékkarnir ná fyrirgjöf. Fanney kemst aðeins í boltann en hann hrekkur út í teiginn. Þar kemst Natalie Trckova í boltann og lúðrar honum á íslenska markið og boltinn fer í þverslána. Svo á Denisa Tenkratova skot sem fer yfir mark Íslands.
58. mín
Sædís með hornspyrnuna en Tékkarnir koma boltanum í burtu. Sigdís lúrði á fjær en Tékkarnir rétt komust í boltann áður en Sigdís komst í boltann.
57. mín
Sigdís reynir að finna Kötlu inn á teignum með innkasti og úr verður að íslenska liðið fær hornspyrnu.
55. mín
Eyrún Embla gerir vel að stöðva möguleika Radka Hlouchova á því að keyra upp vinstri kantinn. Eyrún tæklar boltann í innkast.
Tékkland U19
55. mín
InnRadka Hlouchova
ÚtAndrea Svibkova
Tékkland U19
55. mín
InnVendula Polaskova
ÚtNikola Prazienkova
54. mín
Sædís með aukaspyrnuna en boltinn frá henni er aðeins of langur fyrir Vígdísi Lilju og Tékkar taka markspyrnu.
52. mín
Margrét brosir á bekknum
51. mín
Sigdís með góðan sprett og Albina Goretkiova metur eina kostinn í stöðunni að taka Sigdísi niður. Albina Goretkiova féll ofan á höfuðið á Sigdísi og þetta leit út fyrir að vera vont. Ísland á aukaspyrnu við tékkneska vítateiginn. Sigdís er búin að vera mjög öflug í leiknum og er yngsti leikmaður vallarins.
50. mín
Sigdís Eva með skot eftir að hafa sjálf langt innkast. Reyndi að finna Jakobínu inn á teignum, fékk boltann aftur og skaut yfir.
49. mín
Albina Goretkiova fær högg frá liðsfélaga og Vigdís Lilja nær boltanum. Sú tékkneska liggur aðeins eftir en jafnar sig fljótt.
47. mín
Klara Duchackova með fyrirgjöf/skot af hægri kantinum. Fanney handsamar boltann.
47. mín
Vigdís Lilja með góðan sprett upp vinstri kantinn og nær að færa boltann vel upp völlinn. Snædís nær svo að finna Kötlu inn á teignum en Tékkarnir verjast vel.
46. mín
Tékkar hefja seinni hálfleikinn
45. mín
Michele Schmölzer flautar til leikhlés. Tékkarnir áttu lausan skalla framhjá og með því lauk fyrri hálfleik. Ísland leiðir 1-0!
45. mín
Sædís með fínan varnarleik gegn Klara Duchackova og hreinsar í horn. Lítið eftir af fyrri hálfleik, þurfum að koma boltanum í burtu!
43. mín
Mikið bras á hreinsunum úr íslenska teignum, tekst í þriðju tilraun í þetta skiptið. Bergdís gerir svo vel að vinna aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Íslands.
41. mín
Eyrún finnur Snædísi inn á teignum, Snædís reynir að finna Sigdísi en Tékkarnir lásu þessa sendingu og náðu að hreinsa.
40. mín
Frábærlega gert hjá Kötlu
Katla með geggjaðan sprett, fékk boltann frá Sigdísi og fór framhjá tveimur Tékkum. Katla lét vaða við vítateigslínuna með vinstri fæti en Vanesa Jilkova ver og heldur boltanum. Góð varsla.
39. mín
Sædís í fínni skotstöðu eftir góða sókn. Snædís pressar vel, finnur Kötlu inn á miðsvæðinu sem rennir boltanum á Sædísi sem lét vaða fyrir utan teig. Skotið fór framhjá marki Tékkanna.
36. mín
Flottar mínútur hjá íslenska liðinu. Katla reyndi að þræða Snædísi í gegn og Sigdís var nálægt því að finna Vigdísi með fyrirgjöf. Þarna var séns að fá gott færi en það náðist ekki alveg!
35. mín
Álitleg sókn hjá íslenska liðinu en of löng sending frá Sædísi þegar hún ætlaði að skipta boltanum út til hægri.
31. mín
Katla gerir ágætlega úti hægra megin en nær ekki að finna samherja inn á teignum. Mikaela Nótt Pétursdóttir gerir svo mjög vel að stöðva möguleikann á hraðri sókn Tékkanna.
30. mín
Fín sókn hjá íslenska liðinu. Eyrún fann Írenu sem kemur boltanum á Sigdísi sem leggur boltann áfram á Kötlu. Katla reynir að finna samherja en Vanesa Jilkova handsamar boltann. Fínt spil eftir erfiðar mínútur á undan.
26. mín
Darraðadans
Tékkar halda áfram að fá hornspyrnur. Nú er pakkað inn á markteiginn og farið í línu. Mikið bras inn á markteignum Vanesa Jilkova reynir skot en íslenska liðið nær að verjast. Boltinn fellur blessunarlega fyrir Sædísi sem hreinsar. Svo kemur fyrirgjöf sem Fanney nær að slá stutt í burtu og svo er hreinsað. Þung pressa frá Tékkunum þessar mínúturnar.
22. mín
Tékkar fá horn, fyrirgjöf fer af Sædísi og aftur fyrir. Spyrnan tekin stutt og svo fyrirgjöf. Boltinn fellur fyrir Nikola Prazienkova fyrir utan teiginn og hún lætur vaða. Skotið hennar fer vel framhjá marki Íslands.
20. mín
Sigdís með of fasta fyrirgjöf, Vigdís nær til boltans, kemur aftur með bolta inn á teiginn. Sigdís setur pressu á lausan bolta og Írena Héðinsdóttir Gonzalez nær til boltans fyrir utan teig. Írena lætur vaða en skotið fer framhjá marki Tékka.
18. mín
Bergdís Sveinsdóttir með skot fyrir utan teig eftir fína takta hjá Sigdísi. Góð samvinna hjá Víkingunum tveimur.
17. mín
Skot frá Nikola Prazienkova sem fer vel yfir íslenska markið. Tékkar pressa hátt í kjölfarið og Fanney þarf að leita langt.
16. mín
Fanney!
Denisa Tenkratova með hörkuskot sem Fanney Inga gerir virkilega vel að verja. Tékkar fá sitt fyrsta horn.
15. mín
Klara Duchackova í góðu færi eftir að Mikaela skallaði boltann aftur fyrir sig. Skotið fer framhjá nærstönginni. Full gott færi hjá Tékkunum eftir einn langan bolta.
Ísland U19
13. mín
ÞAAAARNAA!!!!!

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (stoðsending: Sigdís Eva Bárðardóttir)

Góð pressa hjá Snædísi, Sigdís vinnur boltann í kjölfarið úti við hliðarlínu, kemur sér framhjá Nikola Prazienkova og teiknar svo boltann með frábærri fyrirgjöf á höfuðið á Vigdísi Lilju sem skallar í netið. Vigdís gerði vel að komast í boltann og skallaði í netið, glæsilega gert. Frábært mark! Fyrsta mark Íslands á mótinu.
11. mín
Jakobína Hjörvarsdóttir skallar aukaspyrnu Tékkana í burtu og svo fær Fanney Inga Birkisdóttir boltann í hendurnar. Tékkarnir að byrja leikinn betur.
9. mín
Gott færi!
Góð aukaspyrna inn á markteiginn en Andrea Svibkova hittir boltann illa með höfðinu og skallar yfir.
9. mín
Sædís Rún Heiðarsdóttir brýtur á Klara Duchackova rétt við íslenska teiginn. Fyrirliðarnir að kljást.
8. mín
Klara Duchackova með sendingu Andrea Svibkova inn á íslenska teignum en skotið frá Andrea Svibkova lekur framhjá íslenska markinu.
7. mín
Pínu klaufaleg sending frá Fanneyju ætluð út á kant, hittir í bakið á Jakobínu inn á teignum. Þarf aðeins að vanda betur, en engin hætta myndaðist þó.
6. mín
Það heyrist vel í íslenska stuðningsfólkinu. Vel gert!
5. mín
Eyrún reynir langskot í kjölfar hornspyrnunnar. Fínasta pæling, fínt að klára sóknina með tilraun.
4. mín
Ísland fær fyrsta hornið
Bergdís með góða sendingu út til hægri á Sigdísi sem reynir að finna Snædísi inn á teignum. Snædís pressar vel og vinnur með því hornspyrnu.
3. mín
Langur bolti inn á íslenska teiginn og Fanney er smá tæp að vera á undan þeirri tékknesku í boltann en sleppur með þetta og hættan líður hjá.
2. mín
Smá bras inn á íslenska teignum en mér sýnist það vera Bergdís sem nær að þruma boltanum úr teignum.
1. mín
Sigdís fær boltann úti hægra megin strax í byrjun og gerir vel úti á kantinum. Rennir boltanum fyrir og Vigdís kemur boltanum á Bergdísi fyrir utan teig. Bergdís er nálægt því að komast í skotstöðu en þær tékknesku ná að verjast.
1. mín
Ísland byrjar með boltann
Snædís tekur upphafsspyrnu leiksins.
Fyrir leik
Þjóðsöngvarnir í gangi
Það er fín stemning á leikvanginum og þjóðsöngvarnir eru í gangi. Ísland leikur í bláum treyjum og þær tékknesku í gulum.
Fyrir leik
Einar Örn lýsir leiknum á RÚV
Fyrir leik
Tuttugu gráðu hiti
Á heimasíðu UEFA segir að það sé hálfskýjað á leikstað og tuttugu gráðu hiti. Vonandi verður góður stuðningur í stúkunni!
Fyrir leik
Dómarar frá þremur löndum
Michele Schmölzer frá Sviss er með flautuna í dag. Henni til aðstoðar verða þær Tiziana Trasciatti frá Ítalíu og Linda Schmid frá Sviss. Fjórði dómari er svo Ewa Augustyn frá Póllandi.
Fyrir leik
Gríðarlega mikilvægur leikur
Tékkland tapaði sínum fyrsta leik eins og Ísland og eru liðin því jöfn á stigum á botni riðilsins. Hin liðin í riðlinum, Frakkland og Spánn, eigast við í kvöld. Liðin hafa mæst þrisvar áður í þessum aldursflokki og hafa Tékkar unnið tvo sigra og Ísland einn. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenska liðið, enda er ennþá allt opið í riðlinum, og góður möguleiki á að komast í undanúrslit.
Fyrir leik
Þrjár breytingar
Það eru þrjár breytingar á byrjunarliði Íslands frá síðasta leik gegn Spáni, sem tapaðist 3-0. Eyrún Embla Hjartardóttir, varnarmaður Stjörnunnar, kemur inn fyrir Birnu Kristínu Björnsdóttur og þá koma liðsfélagarnir úr Víkingi, Bergdís Sveinsdóttir og Sigdís Eva Bárðardóttir, einnig inn í liðið. Þær eru báðar fæddar árið 2006. Emelía Óskarsdóttir, leikmaður Selfoss, byrjar á bekknum en það vekur athygli. Í byrjunarliðinu eru fimm fæddar 2004, fjórar fæddar 2005 og tvær fæddar 2006. Sigdís Eva Bárðardóttir.
Fyrir leik
Byrjunarlið Íslands
Fyrir leik
Verið velkomin
U19 landslið kvenna spilar sinn annan leik á EM í Belgíu í dag þegar það leikur mikilvægan leik gegn Tékklandi. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV og þá mun Sæbjörn Steinke textalýsa honum hér á Fótbolta.net. Flautað verður til leiks klukkan 15:30.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.