Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild karla
Meistaravellir
Bongó!
KR
KR
3 - 2
Fram
Fram
Ægir Jarl Jónasson 8'1 - 0Benoný Breki Andrésson 9'2 - 02 - 146' Aron JóhannssonKristján Flóki Finnbogason 81'3 - 13 - 290' Magnús Þórðarson
Dómari: Guðgeir Einarsson

SKÝRSLAN: Andleysi hjá Fram varð þeim að falli

Hvað réði úrslitum?

Eins og Raggi orðaði svo vel í viðtali eftir leik að þá var gífurlega mikið andleysi í Framliðinu í fyrri hálfleik. KR-ingar stjórnuðu leiknum frá A til Ö í fyrri hálfleik en síðan komast Framararnir inn í leikinn með sleggjunni frá Aroni. Eftir það taka Framarar yfir leikinn en þá nær Kristján Flóki að skora upp úr nákvæmnlega engu og þá vissi maður að þetta væri komið í hús hjá KR.

Bestu leikmenn

1. Benoný Breki Andrésson

Er með þá reglu að velja aldrei leikmann mann leiksins sem spilaði ekki allar 90 mínúturnar en Benoný stóð bara upp úr í dag. Leggur upp og skorar á tveimur mínútum og í grunninn vinnur hann leikinn fyrir KR með sínu framlagi. Fyrir utan það að hann skoraði og lagði upp að þá var hann mjög sprækur í dag og hætti aldrei að vinna og hlaupa. Geggjaður í einu orði sagt!

2. Theodór Elmar Bjarnason

Erfitt að velja einhvern hér. Fannst bara Theodór spila mjög vel í dag. Hann sýndi það enn og aftur afhverju hann er einn besti og mikilvægasti leikmaður KR. Þriðja markið, sem kláraði leikinn fyrir KR, á hann bara sjálfur alveg skuldlaust. Jújú Kristján Flóki á eftir að gera helling áður en hann fær boltann en þessi undirbúningur hjá Theodóri var stórkostlegur. Magnaður leikmaður og leiðtogi!

Atvikið

Klárlega sleggjan hjá Aroni Jóh í seinni hálfleik. Einhverjar 20 sekúndur liðnar af þessum síðari hálfleik þegar hann fær boltann langt fyrir utan teig og lætur vaða. Aron í marki KR átti ekki séns í boltann. Geggjað mark!

Hvað þýða úrslitin?

KR fara upp í fjórða sætið en Fram er ennþá í þessu blessaða 11. sæti, aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti.

Vondur dagur

Hafsentapar Fram. Öll mörkin voru mörk þar sem varnarleikurinn hefði átt að vera mun betri. Raggi talaði um andleysi í fyrri hálfleik og hann er þá væntanlega að tala um hafsentaparið sitt og bara varnarlínuna. Ekki boði í þessari deild og á þessum velli. Þá er þér refsað. Finnst ógeðslega lélegt og leiðinlegt að ekki velja einvhern einn en ég bara get ekki pikkað neinn einn út fyrir mitt litla líf.

Dómarinn - 7

Bara fínt. Ekkert út í þá að sakast. Kannski einn og einn dómur hér og þar þar sem þeir fóru með rangt mál en bara heilt yfir fínasta framistaða hjá teyminu. Fá solid sjöu frá mér!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.