SKÝRSLAN: Víkingur leiddi HK til slátrunar
Hvað réði úrslitum?
HK er einfaldlega nokkrum númerum of litlir fyrir Víkinga í þeim ham sem þeir eru í þessa dagana. Það var aldrei spurning eftir að Víkingur komst 1-0 yfir hvert stigin færu í dag.
Bestu leikmenn
1. Gunnar Vatnhamar
Tvö skallarmörk og engin vitleysa varnarlega. Færeyingurinn fer sáttur á koddann í kvöld. Hefði þó líklega viljað ná þrennunni en hann var stórhættulegur í teig HK-inga í flestum af 16 hornspyrnum liðsins.
2. Logi Tómasson
Með áætlunarferðir upp vinstri vænginn. Stórhættulegar fyrirgjafir og ég tala nú ekki um hornspyrnunar. Þá var hann einnig líklegur að skora. Það gerðist síðan ekkert á hægri væng HK sóknarlega.
Atvikið
Innkast Eiðs Atla í aðdraganda annars marks Víkings í leiknum var svolítið það sem gaf tóninn. Innkast sem fór beint í fæturnar á Gísla Gottskálk sem fann Danijel Djuric sem skoraði auðvelt mark. Falleinkunn.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur er með átta stiga forskot á toppi deildarinnar á meðan HK er enn í 7.sæti með 23 stig.
Vondur dagur
Ég ætla ekki einu sinni að reyna að kasta einhverjum einum leikmanni HK fyrir rútuna. Frammistaða útileikmanna HK í dag var vond. Þrátt fyrir að hafa fengið sex mörk á sig í dag þá ætla ég að halda Arnari Frey markverði liðsins útúr menginu. Hann varði oft á tíðum frábærlega og kom í veg fyrir að úrslitin urðu ekki verri fyrir HK.
Dómarinn - 8
Þægilegur leikur að dæma en mað allt í teskeið.




