SKÝRSLAN: Vont kvöld fyrir Valsmenn
Hvað réði úrslitum?
Var það sú staðreynd að Valsmenn voru ekki á sínum degi fram á við eða sú staðreynd að Keflvíkingar voru klárir að henda sér fyrir allt sem gestirnir á annað borð höfðu fram að færa? Eflaust bæði í bland en jafntefli líklega bara þokkalega sanngjörn úrslit ef eingöngu er horft til vinnuframlags.
Bestu leikmenn
1. Ernir Bjarnason
Bryðjandi verkjatöflur fyrir leik og í hálfleik barðist hann eins og ljón fyrir félagið sitt og liðsfélaga. Alls ekki besti fótboltamaður í heimi en það má treysta á að hann gefur allt sitt og það alltaf.
2. Birkir Már Sævarsson
Hvern á maður að velja úr Valsliði sem átti ekki sinn besta dag? Þann elsta sem birtist á réttum stað á réttum tíma og bjargaði þó stigi fyrir Val.
Atvikið
Síðasta mínúta leiksins. Tvö mörk alvöru dramatík sem leikurinn sem heild bauð alls ekki uppá. Fínt að fá smá fútt í þetta í lokin.
Hvað þýða úrslitin?
Valur er að dragast meira afturúr Víkingum sem unnu sinn leik sannfærandi í kvöld. Valur í 2.sæti með 42 stig 8 stigum á eftir Víkingum. Keflavík á sama tíma minnkar bilið í öruggt sæti um 1 stig en bæði Fram og ÍBV sem eru í sætunum fyrir ofan töpuðu sínum leikjum.
Vondur dagur
Fremstu þrír í byrjunarliði Vals í dag. Tryggvi Hrafn sem verið hefur á eldi að undanförnu fann sig ekki. Patrick Pedersen var týndur alltof oft í leiknum og gamansamir Keflvíkingar töluðu um Adam Ægi Pálsson sem besta leikmann Keflavíkur í fyrri hálfleik. Alls ekki nógu gott.
Dómarinn - 7
Pétur þurfti almennt ekki að hafa mikið fyrir hlutunum í dag. En eftir að hafa séð myndir af jöfnunarmarki Vals velti ég því fyrir mér hvort ekki hafi verið rétt að dæma háskaleik á þá í teignum þegar skósóli Valsmanns var ansi nálægt því að fara í andlit varnarmanns sem þó stóð uppréttur.



