SKÝRSLAN: Jafnt í Evrópuslag á Akureyri
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið hefðu hæglega getað unnið þennan leik, en hetjulegur varnarleikur og mislagðir fætur fyrir framan markið gera það að verkum að liðin skiptast á jafnan hlut.
Bestu leikmenn
1. Ágúst Eðvald Hlynsson (Breiðablik)
Virkilega sprækur og hljóp á við tvo, ef ekki þrjá, í dag.
2. Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Steig virkilega upp eftir rauða spjaldið og náði að binda leik Blika virkilega fagmannlega saman.
Atvikið
Það er erfitt að velja á milli vitleysunnar í lok leiks eða þegar að Oliver fær reisupassann. Ætla að velja vitleysuna í lok leiks. Það var ótrúlegt að fylgjast með þessu. KA hefði getað skorað tvisvar á sirka mínútu og Blikar einu sinni í millitíðinni.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar eru í þægilegri stöðu í 3. sætinu og bíða þess nú að mæta Zrinjski í seinni leik liðanna í Evrópudeildinni. Liðið þarf að vinna með fjórum mörkum til að jafna einvígið og því kannski ekki sérstök ástæða til bjartsýni. KA er í 8. sæti deildarinnar og á ærið verkefni fyrir höndum í næsta leik, líkt og Blikar. Þá mætir stórlið Club Brugge á Laugardalsvöll með 5-1 forystu í farteskinu.
Vondur dagur
Leikmenn beggja liða hafa oft sýnt meiri yfirvegun og gæði fyrir framan markið. 3-3 hefðu alveg verið eðlileg úrslit miðað við framvindu leiksins.
Dómarinn - 5
Honum er mögulega vorkunn að mikið var um smábrot, en mér fannst línan skringileg. Á svo eftir að sjá vítaspyrnudóminn aftur, en Oliver var afar ósáttur við Elías.




