SKÝRSLAN: Endurkomu sigur í Kaplakrika
Hvað réði úrslitum?
Eftir nokkuð dapran fyrri hálfleik komu FHingar vel gíraðir út í seinni og kláruðu þetta fagmannlega. Heimir gerði 3 mjög góðar skiptingar í hálfleik og uppleggið fór bara heilt yfir að ganga betur.
Bestu leikmenn
1. Davíð Snær Jóhannsson
Mér fannst Davíð virkilega sprækur í dag, mikil hætta sem stafaði af honum og náði alltaf að valda usla. Hann átti svo stoðsendinguna að fyrsta markinu eftir tikitaka spil við Grétar í teignum.
2. Grétar Snær Gunnarsson
Þetta er kannski óvinsæl skoðun en mér fannst Grétar eiga frábæra innkomu í þennan leik. Það eru líklega margir sem hafa átt betra sumar en hann fram að þessu og mér fannst þetta alvöru svar frá honum í dag. Mjög vinnusamur inn á miðjunni og var að dreifa spilinu vel. Arnór Borg átti líka góða innkomu og fær shout.
Atvikið
Jöfnunarmark FH setti tóninn fyrir seinni hálfleikinn. Eftir slakan fyrri hálfleik ná þeir inn marki snemma í seinni og eftir það var eiginlega ekki spurning um hvoru megin þriðja markið myndi detta. FH voru svo bara líklegri til að bæta við þangað til alveg í lokinn þegar ÍBV settu mikla pressu.
Hvað þýða úrslitin?
FH með sterk 3 stig í baráttunni um mögulegt Evrópusæti, þeir eru ennþá stigi á eftir KR sem eru í 4.sæti en eiga leik til góða. Eyjamenn ná ekki að klifra upp töfluna og koma sér úr mestu fallbaráttunni, þeir sitja enn í 10. sæti einu stigi ofar en Fram.
Vondur dagur
Enginn einn sem stendur upp úr eftir leikinn sem átti eitthvað sérstaklega vondan dag. Björn Daníel hefði líklega fengið þetta ef markið sem Dwayne skoraði hefði endað sem sigurmarkið í leiknum en það er erfitt að ætla að tala um ef og hefði.
Dómarinn - 8
Mér fannst Vilhjálmur og hans teymi bara gera þetta mjög vel í dag. Það varð allt brjálað eftir að ÍBV skoraði en eftir að hafa rætt atvikið við certified dómara þá var það bara spot on hjá honum og ekkert sem hægt var að kvarta yfir. Mjög solid 8 fyrir frammistöðu dagsins.



