SKÝRSLAN: Bikarmeistararnir bjarga stigi í Mosfellsbæ
Hvað réði úrslitum?
Hulda Ösp kom inná sem varamaður, skoraði tvö mörk og bjargaði stigi fyrir Mjólkurbikarmeistarana. Afturelding mættu í leikinn með mikla baráttu og sigurvilja og voru óheppnar að fara ekki með 3 stig úr þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Hulda Ösp Ágústsdóttir
Erfitt að gefa henni ekki þessa viðurkenningu. Kemur inná sem varamaður og breytir leiknum, Víkingskonur voru í vandræðum með að koma boltanum í markið framhjá Evu og virtist hún vera sú eina sem gat það í kvöld.
2. Anna Pálína Sigurðardóttir
Klárlega með bestu leikjum Önnu þetta tímabil, var tilbúinn í alvöru bardaga í dag, læsti miðjunni niður og leiddi baráttuvilja Aftureldingar í dag. Frábær frammistaða og Víkingskonur áttu ekki roð í hana í dag.
Atvikið
Mark Víkingskvenna í lokin, kom upp úr aukaspyrnu frá kantinum, klafs í teignum sem datt vel fyrir Huldu sem kláraði vel. Uppúr þessu urðu rifrildi um boltann, og Maya fékk rautt spjald fyrir að hrinda leikmanni Víkings. Vond mínúta fyrir Aftureldingu.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingskonur eru ennþá í efsta sætinu með 33 stig, 4 stigum fyrir ofan Fylki í 2. sætinu. Afturelding er í 5. sæti með 24 stig.
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir sóknarleik Víkings í dag, á milli teiganna voru Afturelding miklu sterkari. Helstu hættur Víkings komu upp úr föstum leikatriðum, hornum og aukaspyrnum, og náðu varla að skapa neitt í opnum leik. Þær voru heppnar að Hulda klæddi sig í markaskóna fyrir leik.
Dómarinn - 6/10
Hann hefði getað verið harðari á spjöldunum í dag, sleppir að spjalda á brot í gegnum leikinn en hikar svo ekki við að gefa Mayu rautt í lokin.


