SKÝRSLAN: Háspenna í Úlfarsárdal
Hvað réði úrslitum?
Frábær skemmtun í Úlfársardalnum í kvöld. Kaflaskiptur leikur fullur af skemmtun, mörkum og dramatík. Fylkir hóf leikinn vel og komst í 2-0 eftir 26 mínútna leik. Síðan vaknaði Fram til ífsins og áttu frábæran kafla eftir erfiða byrjun. Fram minnkaði muninn í 2-1 og þannig var staðan þegar liðin gengu til búningherbergja. Fram jafnaði leikinn á 67 mínútu og var leikurinn galopinn eftir það. Bæði lið hefðu hæglega getað sigrað í kvöld og var það Fylkir sem hafði betur, en Tinna Harðardóttir skoraði frábært mark þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Hnífjafn leikur í kvöld!
Bestu leikmenn
1. Tinna Harðardóttir
Það var virkiega mikið af frábærum frammistöðum í kvöld. En Tinna er valin best einfaldlega vegna þessa frábæra marks sem hún skoraði seint í leiknum. Þetta mark var alveg frábært og tryggði Fylkiskonum öll þrjú stigin!
2. Ólína Sif Hilmarsdóttir
Ólína Sif var geggjuð á kantinum í kvöld. Hún skapaði heilan helling af færum.Þarf líka að minnast á Breukelen sem átti agjörlega frábært kvöld. Guðrún Karítas, framherji Fylkis var einnig frábær í kvöld.
Atvikið
Þetta geggjaða sigurmark hjá Tinnu Harðardóttur! frábært mark og frábært augnablik!
Hvað þýða úrslitin?
Þetta voru mikilvæg þrjú stig sem gestirnir nældu sér í í kvöld. Fylkir er núna jafnt HK að stigum, og er komið upp í annað sætið. Fylkir er fjórum stigum fyrir aftan Víking, og mætast þau lið í næstu viku!
Fram er enn í 7. sætinu eftir leikinn í kvöld. Liðið gæti hins vegar dottið niður í það 8. skyldi FHL ná í stig á móti Gróttu á morgun.
Vondur dagur
Þetta var svo rosalega skemmtilegur leikur að maður tók lítið eftir leikmönnum sem áttu slæmt kvöld í kvöld og stóð í rauninni enginn upp úr sem var léleg í kvöld.
Dómarinn - 6
Helgi var fínn í fyrri hálfleiknum. Missti aðeins tök á leiknum í seinni hálfleik og spjaldaði ekki jafnt á báða bóga. Heilt yfir, ekkert frábær en ekki hörmulegur heldur.


