Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Norðurálsvöllurinn
ÍA
ÍA
1 - 0
Selfoss
Selfoss
Hlynur Sævar Jónsson 37'1 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Mikil læti í mikilvægum leik í Skaganum

Hvað réði úrslitum?

Þetta var mjög jafn leikur, en ÍA var með yfirhöndina í honum. Selfyssingar reyndu að svara eftir að ÍA komast yfir, en þrátt fyrir að vera einum fleiri seinustu 10 mínútur leiksins náðu þeir ekki að skora markið sem þurfti.

Bestu leikmenn

1. Hlynur Sævar Jónsson

Var flottur í bakverðinum og skoraði eina mark leiksins. Hann átti líka önnur góð færi á markið.

2. Árni Marinó Einarsson

Árni var alveg sturlaður í markinu í leiknum. Átti flotta vörslu á Gary Martin og var mjög öruggur í rammanum.

Atvikið

Það var allt sturlað á vellinum eftir að Arnleifur fékk sitt seinna gula spjald. Áhorfendur voru á tánnum, þjálfarateymið voru með læti og leikmenn voru með pirring. Selfoss var að leyta af jöfnunar marki, en fóru í staðinn tómhendir heim.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA er með jafn mörg stig og Afturelding og deilir þá fyrsta sætinu með þeim, Afturelding spila þó sinn leik á morgunn. Selfoss dettur niður í 11. sæti í fallsæti eftir að Þróttur jafnar þeim að stigum, en með hærri markatölu.

Vondur dagur

Framherjarnir Gary Martin og Viktor voru frekar ósýnilegir í þessum leik. Lítið sem ekkert sem kom frá þeim í þessum mikilvæga leik.

Dómarinn - 5

Það var mikil læti í þessum leik og var Pétur með harða línu, sem var gott á tímum. Hann gaf þó leikmönnu stundum gul spjöld fyrir litla ástæður. Svo átti þetta alltaf að vera víti fyrir ÍA í mínum augum þegar Arnleifur fékk seinna gula spjaldið fyrir leikaraskap á 80. mínútu leiksins.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.