SKÝRSLAN: Njarðvíkingar á miklu flugi
Hvað réði úrslitum?
Þórsararnir byrjuðu leikinn vel en Njarðvík braut ísinn og náðu öðru marki inn fyrir lok fyrri hálfleiks. Þreföld skipting Þórsara strax í hálfleik blés smá lífi í þá en Njarðvíkingar skoruðu fræga þriðja markið og drápu leikinn.
Bestu leikmenn
1. Oumar Diouk
Oumar og Rafael voru frábærir í dag. Oumar leggur upp markið á Rafael og svo leggur hann einnig upp markið sem klárar leikinn með hniðmiðaðri fyrirgjöf
2. Rafael Victor
Virkilega sterkur leikur hjá Rafael. Kemur Njarðvíkingum á bragðið með góðu marki og gerir virkilega vel í undirbúningnum á marki númer tvö.
Atvikið
Mörk breyta leikjum svo sannarlega! Þórsarar byrjuðu leikinn vel og Bjarni Guðjón var nálægt því að koma liðinu yfir eftir stundarfjórðung en skot hans fór í stöngina. Aðeins fimm mínútum síðar komst Njarðvík í forystuna og lét hana aldrei af hendi.
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvík komið í bullandi baráttu um umspilssæti. Allt annað að sjá til liðsins eftir komu Gunnars Heiðars sem var að vinna sinn fimmta sigur í sjö leikjum. Liðið situr í 7. sæti, stigi á eftir Þór sem er í sætinu fyrir ofan.
Vondur dagur
Það var kraftur í Þórsurum í upphafi leiks en það datt allur botn úr þessu við fyrsta markið. Þeim tókst að rífa sig aðeins upp í síðari hálfleik en frammistaða liðsins heilt yfir alls ekki góð.
Dómarinn - 7
Flottur leikur hjá honum. Fór svolítið fyrir honum sitthvoru megin við hálfleikinn. Varð svolítið spjaldaglaður og ég varð hærddur um að línan yrði skrítin en svo varð ekki. Hann hafði bara góð tök á þessu.


