SKÝRSLAN: Þróttur upp úr fallsæti á markatölu
Hvað réði úrslitum?
Það var mikil barátta á milli teiganna allan leikinn og þetta hefði í raun getað dottið öðru hvoru megin og jafntefli sanngjarnt heilt yfir. Grótta fengu líklega fleiri færi en Þróttarar vörðust vel og voru svo mjög nálægt því að taka öll stigin heim í Laugardal síðustu mínúturnar en allt kom fyrir ekki.
Bestu leikmenn
1. Kristófer Orri Pétursson
Í leik þar sem enginn einn sérstakur leikmaður bar af er alltaf fín lausn að velja þann sem skoraði mesti og í dag var það Kristófer Orri. Var flottur í leiknum og tvö vel kláruð mörk er bara nokkuð gott dagsverk.
2. Arnar Númi Gíslason
Arnar Númi var eins og rennilás upp og niður vinstri kantinn og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Var alltaf að gera sig líklegan og átti stoðsendingu í fyrsta marki Gróttu. Í seinni hálfleik var hann ekki alveg jafn áberandi sóknarlega en var að vinna mjög góða varnarvinnu.
Atvikið
Sveinn Óli fór meiddur út af eftir u.þ.b. 10 mínútna leik og inn fyrir hann kom Hilmar Örn Pétursson í sínum fyrsta meistaraflokksleik. Þrátt fyrir að aðstæðurnar hafi ekki verið óskandi að þá er alltaf gleðiefni þegar uppalinn leikmaður spilar sinn fyrsta meistaraflokksleik.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttarar fara upp úr fallsæti á markatölu og senda Selfoss niður fyrir sig. Stigið gerir minna fyrir Gróttu sem missa Njarðvík og Grindavík fram fyrir sig og fjarlægjast topp 5.
Vondur dagur
Kostiantyn Pikul gerði mistök í fyrsta markinu sem hann á líklega eftir að spila oft í hausnum á sér. Þrátt fyrir það átti hann fínan leik í það heila og kannski ósanngjarnt að setja hann einan hér þannig Steven Lennon fær að fljóta með. Hann komst í engan takt við leikinn og var ekki að koma sér í þær stöður og þau færi sem við vitum öll að hann getur komið sér í.
Dómarinn - 8
Mér fannst ÞÞÞ og teymið gera þetta vel í dag. Hliðarlínan var spræk og kallaði mikið inn á en eftir að hafa séð það helsta sem var verið að kvarta yfir að þá fannst mér Þórður bara vera með þetta í teskeið.


