Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
Skýjað og smá gola, hiti um 13 gráður
Grindavík
Grindavík
7 - 2
Ægir
Ægir
Kristófer Konráðsson 15'1 - 0Dagur Ingi Hammer Gunnarsson 25'2 - 0Dagur Ingi Hammer Gunnarsson 50'3 - 0Óskar Örn Hauksson 51'4 - 04 - 176' Brynjólfur Þór EyþórssonEdi Horvat 79'5 - 15 - 284' Dimitrije CokicDagur Austmann Hilmarsson 90'6 - 2Edi Horvat 93'7 - 2
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Grindvíkingar í sjöunda himni felldu Ægi

Hvað réði úrslitum?

Grindavík hitti á sinn dag en Ægir ekki. Fyrirfram var Grindavíkurliðið sigurstranglegra og þeir sýndu í dag af hverju. Á sama tíma átti stór hluti liðs Ægis sennilega sinn versta dag í sumar og því fór sem fór.

Bestu leikmenn

1. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson

Skorar tvö í dag og var talsvert að ógna. Fremstu menn Grindavíkur báru af í dag og þar var hann fremstur meðal jafningja.

2. Edi Horvat

Fullyrði að enginn leikmaður á vellinum hafi verið með þvílíka yfirferð og Edi yfir 90 mínútur. Edi sjálfur átti reyndar bara 30 mínútur á vellinum og gerði á þeim tvö góð mörk. En ungur stuðningsmaður Grindavíkur Patrekur Atlason var með stærðarinnar fána með mynd af Edi á hlaupum meðfram vellinum endilöngum leikinn á enda.

Atvikið

Fyrra mark Edi í dag. Stúkan trylltist af gleði að sjá framherjan stóra skora sitt fyrsta mark á Stakkavíkurvellinum þetta tímabilið. Skemmtilegt atvik.

Hvað þýða úrslitin?

Ægir er fallið í 2.deild og leikur þar að ári, Grindavík er í séns að komast í umspilssæti en þarf enn að treysta á að önnur lið misstígi sig þar sem liðið situr í sjötta sæti með 25 stig einu stigi á eftir Leikni sem situr í því fimmta.

Vondur dagur

Stefan Dabetic fyrirliði Ægis hefur átt betri daga á vellinum. Einn af þessum dögum sem hann vill örugglega læra af og gleyma svo strax

Dómarinn - 6

Ekki hræðilegur en heldur ekkert frábær. Ég vill fara að sjá Gunnar Odd stíga meira upp og bæta sig sem dómari. Finnst hann hafa staðnað um of að undanförnu og tel hann eiga talsvert inni. Leikurinn í heild þó ekki illa dæmdur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.