SKÝRSLAN: Afturelding hangir í toppsætinu
Hvað réði úrslitum?
Leiknismenn fóru betur með færin sín í leiknum. Afturelding vour töluvert meira með boltann og sköpuðu sér fleiri álitlegar stöður en Leiknir vörðust gríðarlega vel og vörðu teiginn sinn næstum óaðfinnanlega. Þeir tóku svo sín tækifæri og skoruðu tvö góð mörk og hefðu hæglega getað sett fleiri.
Bestu leikmenn
1. Andi Hoti
Öll varnarlína Leiknismanna á skilið mann leiksins en ég valdi Andi Hoti í dag. Hann var mjög öflugur í dag og hélt Arnóri Gauta algjörlega í skefjum ásamt Patryk. Hann var öflugur í boxinu að koma boltanum frá og var óhræddur við að fá boltann í uppspili og dreifa honum.
2. Patryk Hryniewicki
Eins og Andi var Patryk alveg gríðarleg öflugur í dag. Skallaði allt frá sem kom á hann og bjargaði á línu þegar korter var eftir en mark þar hefði svo sannarlega getað komið Aftureldingu inn í leikinn.
Atvikið
Fyrsta mark Leiknis sem kom upp úr þeirra fyrstu almennilegu sókn setti leikinn í smá uppnám. Fyrir það voru Afturelding búnir að vera töluvert líklegri en allt í einu voru þeir að elta.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding hangir í toppsætinu á bláþræði með jafn mörg stig og Skagamenn en með betri markatölu. Leiknismenn sækja mjög sterk þrjú stig í baráttunni um topp 5 en þeir eru með 4 stig á Grindavík.
Vondur dagur
Sóknarlína Aftureldingar hefur átt betri daga. Arnór Gauti komst einhvernveginn aldrei í takt við leikinn og Ivo átti fína spretti en það vantaði aðeins upp á gæði í úrslitasendingar og skot. Andri Freyr átti, eins og Ivo, fína spretti en það gekk lítið og hann fór svo út af eftir klukkutíma leik.
Dómarinn - 8
Erlendur dæmdi þetta vel í dag eins og honum einum er lagið. Eina vafaatriðið að mér fannst var vítið sem Leiknismenn fengu ekki en það kom ekki að sök. Hann reif upp spjöldin á réttum tímum og lét lítið fyrir sér fara þess á milli.


