Fotbolti.net
Besta deildin
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
Hellirigning, 13°C og vindur. Engar kjöraðstæður í ágúst.
FH
FH
3 - 2
Valur
Valur
Davíð Snær Jóhannsson 23'1 - 01 - 124' Kristinn Freyr Sigurðsson 1 - 233' Patrick PedersenGyrðir Hrafn Guðbrandsson 49'2 - 2Gyrðir Hrafn Guðbrandsson 59'3 - 2
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Who you gonna call? Gyddi Guðbrands!

Hvað réði úrslitum?

Mistök aftast hjá Val kostuðu þá sigurinn í dag. FH-ingar mega eiga það að þeir voru klárir í að nýta sér mistökin og gerðu það. Mér fannst Valsarar heilt yfir betri í fyrri hálfleiknum en eftir að FH jafnaði í byrjun seinni þá átti liðið leikinn stærstan hluti seinni hálfleiks og vann verðskuldaðan sigur.

Bestu leikmenn

1. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson

Þessi gæi er magnaður. Tilbúinn í allan djöfulgang og tekur sínu hlutverki eins og fagmaður. Ég held að margir hafi hrist höfuðið þegar FH sótti Gyrði frá Leikni en sá hefur reynt þeim vel. Enginn sem þarf færri mínútur í að skora mark í deildinni. Fyrir utan mörkin var hann líka mjög góður.

2. Daði Freyr Arnarsson

Daði leysti Sindra af og stóð sig virkilega vel, átti nokkrar magnaðar markvörslur og býr nú til ausverk hvað FH-ingar eiga að gera ef Sindri verður klár á næstunni. Fékk kallið og svaraði með stæl. Davíð Snær fær líka shout frá mér, virkilega góður í leiknum.

Atvikið

Heimir Guðjóns ,,hringdi í" Gyrði í hálfleik og sú ákvörðun reyndist virkilega góð. Það var ekkert út á Harald að setja í fyrri hálfleiknum en breyting á leikkerfi og hlaupageta Gyrðis fremst á vellinum gerði gæfumuninn.

Hvað þýða úrslitin?

FH er áfram í bullandi séns á 4. sætinu í deildinni. Valur er búinn að gleym einhverri von um titilinn en nú þarf að rétta við skútuna og sigla 2. sætinu heim.

Vondur dagur

Hólmar Örn Eyjólfsson vill gleyma þessum leik. Gaf fyrsta mark FH og lét Björn Daníel plata sig í þriðja markinu. Erfið vika hjá miðverðinum.

Dómarinn - 9

Virkilega vel dæmdur leikur hjá Ívari Orra. Tók ekki mikið eftir honum og allar ákvarðanir réttar, ekki mikið um stór atvik til að hækka upp í tíuna góðu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.